Katrín Jakobs og Inga Rut taka sæti í stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs

Ný stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs var kjörin á aðalfundi Miðstöðvarinnar í Grósku 3. júní 2025. Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra og Inga Rut Gylfadóttir landslagsarkitekt taka þar sæti og mynda nýja stjórn ásamt Þórunni Hannesdóttur, formanni Félags vöru- og iðnhönnuða, Gísla Arnarsyni, Félag íslenskra teiknara og Arnari Halldórssyni sköpunarstjóra og einum af eigendum Brandenburg. Rósa Dögg Þorsteinsdóttir ljósahönnuður og Helga Valfells fjárfestir stigu úr stjórn Miðstöðvarinnar á Aðalfundinum.
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs er í eigu félaganna níu, en í stjórn sitja fimm manns, þar af þrír aðilar skipaðir úr hluthafahópi og tveir aðilar úr atvinnulífi. Stjórn mótar félaginu stefnu og hefur eftirlit með því að henni sé framfylgt, stuðlar að vexti og viðgangi félagsins og hefur yfirumsjón með rekstri. Stjórninni ber að gæta jafnt hagsmuna allra hluthafa.
Breytingar á dómnefnd, Hönnunarsjóði, HönnunarMars og úthlutunarnefnd
Fleiri breytingar voru gerðar á aðalfundinum, m.a. á dómnefnd Hönnunarverðlaunanna. Bergur Finnbogason, hönnuður stígur inn í dómnefnd en Halldór Eiríksson, arkitekt AÍ lauk dómnefndarstörfum.
Þá var Ingólfur Freyr Guðmundsson, hönnuður kjörinn í stjórn Hönnunarsjóðs en Helgi Steinar Helgason, arkitekt steig úr stjórninni.
Hildur Gunnlaugsdóttir, arkitekt og Kristján Schram, ráðgjafi stíga ný inn í stjórn HönnunarMars en Nils Wiberg, stafrænn hönnuður og Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri hætta í stjórn hátíðarinnar.
Auður Gná Ingvarsdóttir, vöruhönnuður tekur sæti í úthlutunarnefnd hönnunarlauna en Erla Björk Baldursdóttir frá Fatahönnunarfélagi Íslands hættir.
Þá voru einnig kjörnir nýir fulltrúar Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs í úthlutunarnefnd menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkurborgar. Ný inn koma Búi Bjarmar Aðalsteinsson, vöruhönnuður FVI og Rósa Dögg Þorsteinsdóttir, ljósahönnuður FHI.
Fráfarandi stjórnarmönnum og fulltrúum voru færðar þakkir fyrir vel unnin störf.