Opinn kynningarfundur um samstarfsverkefni stjórnvalda og hagaðila byggingariðnaðarins um vistvænni mannvirkjagerð
Opinn kynningarfundur um samstarfsverkefni stjórnvalda og hagaðila byggingariðnaðarins um vistvænni mannvirkjagerð fimmtudaginn 18. febrúar kl. 9.00-10.30 á TEAMS.
Fundurinn er öllum opinn
Um 35 sérfræðingar víðsvegar úr byggingariðnaðinum hafa þegar hafið störf í sex hópum á vegum verkefnisins. Allir hagaðilar eru hvattir til að taka þátt í vinnustofum og samtölum sem munu fara fram á vegum hópanna á næstu vikum og mánuðum. Í vor verða svo drög að niðurstöðunum opnar fyrir umsagnir áður en endanleg útgáfa vegvísisins verður gefin út.
Verkefnið Byggjum grænni framtíð og á rætur sínar að rekja til aðgerðar C.3 í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Viðfangsefnið felst í að afla upplýsinga um losun mannvirkjagerðar á viðmiðunarári (2018), setja markmið um að minnka þá losun til 2030 og skilgreina aðgerðir svo það takist. Síðar á þessu ári verða niðurstöðurnar gefnar út í sérstökum Vegvísi að vistvænum mannvirkjum 2030.
Á kynningarfundi verkefnisins þann 18. febrúar n.k. verður fjallað nánar um þetta verkefni, auk þess sem fulltrúar þriggja ólíkra hagaðila fjalla um tækifæri, áskoranir og ávinning varðandi vistvænni mannvirkjagerð út frá þeirra sjónarhorni.
Dagskrá:
Fundarstjóri: Lárus M. K. Ólafsson, viðskiptastjóri hjá Samtökum iðnaðarins
- Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, HMS, verkefnastjóri Byggjum grænni framtíð
„Byggjum grænni framtíð; Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030“
- Sigríður Ósk Bjarnadóttir, VSÓ/HÍ, hópstjóri í hóp 6, mælingar
„Byggjum grænni framtíð; mælingar og markmið“
- Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri Jáverks
„Byggingarverktakar byggja grænni framtíð: Tækifæri, áskoranir, ávinningur“
- Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
„Sveitarfélög byggja grænni framtíð: Tækifæri, áskoranir, ávinningur“
- Brynjólfur Bjarnason, viðskiptastjóri hjá Íslandsbanka
„Fjármálastofnanir byggja grænni framtíð: Tækifæri, áskoranir, ávinningur“
Spurt og svarað í lok fundar
Fundurinn er haldinn á vegum verkefnastjórnar verkefnisins en hana skipa fulltrúar frá Grænni byggð, Samtökum iðnaðarins, Vegagerðinni, Umhverfisstofnun, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, félagsmálaráðuneytinu og HMS.
Frekari upplýsingar um verkefnið verða aðgengilegar á vefsíðunni byggjumgraenniframtid.is, sem verður opnuð formlega á kynningarfundinum.
Þau sem vilja fá tölvupósta með tilkynningum um vinnustofur og aðrar vörður verkefnisins eru hvött til að skrá sig hér.