Rekstur smáfyrirtækja - fyrirlestur í streymi þriðjudaginn 12. janúar kl. 13:00 fyrir félagsmenn BHM
Fyrirlestur ístreymi á streymisveitu BHM þriðjudaginn 12. janúar kl. 13:00. Fyrirlesturinn verður aðgengilegur í fimm daga í kjölfarið á fræðslusíðu BHM, hér:Fræðsla fyrir félagsmenn*.
Guðrún Björg Bragadóttir frá viðskipta- og skattasviði KPMG mun halda fyrirlestur um ýmis mál tengd bókhaldi fyrir einstaklinga sem eru í rekstri á eigin kennitölu eða hafa stofnað einkahlutafélag.
Meðal þess sem hún fara yfir er:
- Munurinn á sjálfstætt starfandi og launþega
- Reiknað endurgjald
- Skil opinberra gjalda
- Skil launatengdra gagna
- Lífeyrissjóður og heimildir til að greiða umfram hlutfall af reiknuðu endurgjaldi
- Stéttarfélög og sjóðir
*Athugið að fyrir neðan innskráningardálkana á hlekknum Fræðsla fyrir félagsmenn eru tveir hlekkir: Nýskráning og Gleymt lykilorð – fyrir þau sem eru að skrá sig inn í fyrsta sinn eða hafa gleymt lykilorðinu.