Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

FÓLK, BAÐ, Fischersund og Flothetta á hátíðinni 3daysofdesign

10. júní 2025

Sýningin Íslenska vöruhúsið er hluti af 3daysofdesign, árlegri hönnunarhátíð í Kaupmannahöfn sem fram fer 18. – 20. júní.

Sýningin er haldin í íslenska sendiráðinu í borginni en þar sameinast nokkur öflug, íslensk hönnunarfyrirtæki sem eiga það sameiginlegt að vinna með menningararf og sögu Íslendinga.

Opnunarhóf: Miðvikudaginn 18. júní kl. 16.30 - 18.30. Sjá nánar hér.

  • FÓLK Reykjavík sýnir nýja útgáfu af klassískum íslenskum húsgögnum og nýjum vörum eftir íslenska hönnuði úr náttúrulegum og endurunnum efnum.
  • BAÐ, samstarfsverkefni íslenskra hönnuða fyrir Epal sem sérhæfa sig í að þróa vörur sem dregur innblástur frá ósnertri náttúru og tengjast einstakri baðmenningu Íslands.
  • Fischersund, listasamsteypa og fjölskyldurekið ilmhús, sem talar til allra skilningarvita í gegnum ilm, tónlist og myndlist. 
  • Flothetta er hönnunarverkefni sem gengur út á heilun í vatni.

Sérstakir viðburðir 19. júní

  • Kl. 9:30 - 10:30. Stofnandi FÓLK Reykjavík, Ragna Sara Jónsdóttir, ræðir við Ástu Stefánsdóttur, forstöðumann Damerne Først um hugmyndafræði FÓLK í íslenska sendiráðinu. Sjá nánar hér.
  • Kl. 14:00 - 15:00. Viðburður á vegum EPAL um einstaka baðmenningu Íslands í íslenska sendiráðinu. Sjá nánar hér.
  • Kl. 20:00. Á Hotel Cecil er viðburður á vegum Fischersund, sérstök tónlistar- og ilmupplifun. Sjá nánar hér.

Sýningin er samstarfsverkefni sendiráðs Íslands í Danmörku, Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs og Íslandsstofu.

Hátíðin 3daysofdesign hefur verið haldin árlega síðan 2013 og er ein stærsta hönnunarhátíð Skandinavíu. Í fyrra voru þátttakendur yfir 400 talsins en hátíðin teygir sig um alla Kaupmannahöfn, fer fram í sýningarsölum, verslunum, götum, galleríum, sendiráðum og víðar.

FÓLK Reykjavík

Hönnunarmerkið Fólk er nýsköpunarfyrirtæki stofnað árið 2017 til að ýta undir hönnun og framleiðslu sem styður sjálfbærni og hringrás hráefna auk þess að vera stökkpallur fyrir íslenska hönnuði á erlendri grundu.

Vörur fyrirtækisins eru hannaðar eftir sérstökum skilyrðum þar sem meðal annars eru einungis notuð náttúruleg og endurunnin hráefni auk þess sem ekkert plast er notað í umbúðum. FÓLK vinnur að tilraunum á notkun á nýjum endurunnum hráefnum við framleiðslu hönnunarvöru í samstarfi við íslensk framleiðslufyrirtæki.

Samstarfshönnuðir FÓLK Reykjavík eru þau Jóni Helgi Hólmgeirsson sem hlaut hönnunarverðlaun ársins árið 2019 sem yfirhönnuður Genki Instruments, Ólína Rögnudóttir og Theódóra Alfreðsdóttir sem tilnefnd var til Norrænu Formex hönnunarverðlaunanna árið 2019.

BAÐ – Ný íslensk hönnunarlína frá EPAL

Línan var þróuð á árinu 2024 og kom á markað í byrjun árs 2025. BAÐ samanstendur af fáguðum og tímalausum nytjahlutum sem stuðla að umhyggju og vellíðan.

Í línunni má finna handklæði, baðsloppa, sundtöskur, sápur, ilmi, ýmis konar nytjahluti úr keramiki og snyrtitöskur – hannað af alúð með náttúrulegum litum og áferð sem sækja innblástur sinn úr íslensku landslagi. Lögð er sérstök áhersla á sjálfbærni og staðbundna framleiðslu, og eru allar sápur, húðvörur og keramíkhlutir framleiddir á Íslandi úr íslenskum hráefnum þar sem það er mögulegt.

BAÐ er afrakstur einstaks samstarfs fjögurra þekktra íslenskra hönnuða, sem hver og einn var valinn vegna sérþekkingar og einstakrar sýnar:

  • Ihanna –  er þekktur textílhönnuður sem leggur áherslu á innanhússhönnun með íslenskum áherslum.
  • Margrét Jónsdóttir – þekkt fyrir fíngerða keramíkhönnun sem dregur innblástur frá náttúrunni.
  • Flothetta – höfundur heims velíðunar í vatni í formi flotmeðferða í náttúrulegu umhverfi.
  • Sóley – skapari ilma og jurtaafurða með áherslu á íslenskt hráefni úr náttúrunni.

Fischersund

Fischersund er fjölskyldurekin ilmgerð og listasamsteypa þar sem systkinin Jónsi, Ingibjörg, Lilja og Sigurrós sameina krafta sína ásamt tónlistarmönnunum Kjartani Holm og Sindra Má Sigfússyni í sterkt skapandi afl á sviði íslenskrar samtímalistar. 

Sögulega svarta húsið í Fischersundi 3 er hjartað í sköpun þeirra og þar birtist frásagnarlist í hverjum ilmi í fallegu samhengi við tónlist, myndlist og ljóðlist.

Flothetta

Flothetta er hönnunarverkefni sem varð til á Íslandi árið 2011. Hugmyndasmiðurinn er Unnur Valdís Kristjánsdóttir, vöruhönnuður og vatnsmeðferferðaraðili. Flothetta sprettur úr reynsluheimi hennar sem Íslendings sem stundað hefur náttúru- og sundlaugaferðir frá blautu barnsbeini. Þannig samtvinnast áhugi Unnar Valdísar á hönnun og að vinna með heita vatnið til heilsueflingar, slökunar og endurnæringar. 

Flotbúnaðurinn er hannaður til að veita líkamanum áreynslulausan flotstuðning í vatni, skapa aðstæður fyrir djúpslökun, draga úr verkjum í vöðva- og stoðkerfi líkamans. Þetta góða slökunar- og vellíðunarástand sem næst í þyngdarleysi vatnsins gerir okkur kleift að losa um andlega og tilfinningalega streitu og skapa samhljóm, tengingu og jafnvægi.

Íslenska vöruhúsið á 3daysofdesign

Tengt efni

  • Katrín Jakobs og Inga Rut taka sæti í stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs

  • Hvernig hönnum við lifandi samfélag?

  • Íslenska þjóðardeginum fagnað á heimsýningunni í Osaka

Dagsetning
10. júní 2025
Höfundur
Klara Rún Ragnarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Fagfélög
  • 3daysofdesign

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200