Um félagið

Skrifstofa Arkitektafélags Íslands er á 1. hæð í Grósku, Bjargargötu 1, 102 Reykjavík.
Símanúmer
+ 354 7802228
Netfang
ai@ai.is
Saga Arkitektafélags Íslands
Fyrsta fagfélag þeirra sem sinntu byggingarlist hér á landi, Byggingameistarafélag Íslands, var stofnað í Reykjavík árið 1926. Megintilgangur félagsins var sá sami og kemur fram í gildandi lögum Arkitektafélags Íslands: að stuðla að góðri byggingarlist í landinu, efla samvinnu félagsmanna og standa vörð um hagsmuni þeirra. Í félagið gengu nokkrir arkitektar, nýkomnir frá námi.
Árið 1936 var hið Akademíska arkitektafélag stofnað og voru félagsmenn þeir sem útskrifast höfðu frá fullgildum arkitektaskólum. Helsta baráttumál félagsins var að fá stjórnvöld til þess að veita einungis fullmenntuðum arkitektum réttindi til að bera starfsheitið húsameistari/arkitekt og að leggja aðaluppdrætti fyrir byggingarnefndir. Þessu fékk félagið þó ekki framgengt við íslensk stjórnvöld, en sætti sig við þá lausn að þeir sem starfað höfðu við húsateikningar og byggingarstörf að aðalstarfi síðustu sex árin skyldu fá leyfi stjórnvalda til þess að bera starfsheitið húsameistari fyrir gildistöku laga nr. 24 frá 13. júní 1937.
Ákveðið var árið 1939 að veita þeim mönnum sem stjórnvöld veittu réttindi til að kalla sig húsameistari en ekki höfðu lokið akademísku námi, aðild að Arkitektafélaginu og var nafni félagsins jafnframt breytt í Húsameistarafélag Íslands og lögum þess þannig að allir þeir sem uppfylltu skilyrði laga um húsameistaratitilinn gætu orðið félagar í Húsameistarafélaginu. Gamla fagfélag byggingameistara var sama ár lagt niður, enda ekki talin ástæða til að hafa tvö fagfélög starfandi í svo litlu þjóðfélagi.
Nokkur ágreiningur reyndist lengstaf vera meðal félagsmanna um starfstitilinn, og töldu ýmsir ekki rétt að gefa til kynna að starfið takmarkaðist við húsbyggingar. Á aukaaðalfundi í Húsmeistarafélagi Íslands árið 1956 var samþykkt tillaga um að breyta nafni þess í Arkitektafélag Íslands.
Logo félagsins
Starfsfólk Arkitektafélags Íslands
Elísa Jóhannsdóttir
Framkvæmdastjóri AÍelisa@ai.is
Stjórn Arkitektafélags Íslands
Sigríður Maack
gjaldkeriJóhanna Høeg Sigurðardóttir
ritariHelga Guðrún Vilmundardóttir
formaður
Skoðunarmenn ársreikninga
Halldóra Vífilsdóttir
Sigríður Magnúsdóttir
Samkeppnisnefnd
Björn Guðbrandsson
Falk Krüger
Hildur Gunnlaugsdóttir
Menntamálanefnd
Birta Fróðadóttir
Brynhildur Sólveigardóttir
Bryndís Alfreðsdóttir
Hjördís Sóley Sigurðardóttir
Laganefnd
Hildur Gunnarsdóttir
Hrafnhildur Sverrisdóttir
Guðlaug Erna Jónsdóttir
Framþróunarnefnd
Anna Karlsdóttir
Hlynur Axelsson
Kristján Örn Kjartansson
Ólafur Ólason
Sóley Lilja Brynjarsdóttir
Siðanefnd - sidanefnd@ai.is
Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir
Jóhannes Þórðarson
Sólveig Berg
Dagskrárnefnd - dagskrarnefnd@ai.is
Bjarki Þór Wium
Elma Klara Þórðardóttir
Lakshmi Björt Þuríðardóttir Jacob
Þórbergur Friðriksson
Orða- og ritstjórnarnefn
Guðrún Harðardóttir
Bjarki Gunnar Halldórsson
Fanney Margrét Eiríksdóttir
Stjórn minningarsjóðs Guðjóns Samúelssonar
Aðalheiður Atladóttir
Garðar Snæbjörnsson
Sigríður Maack, fyrir hönd formanns AÍ
Formaður BÍL