Skapalón
Skapalón eru þættir um hönnun og arkitektúr fyrir ungt fólk. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og List fyrir alla hlutu styrk úr Barnamenningarsjóði og fengu RÚV og 101 Production til liðs við sig við framleiðslu þáttanna.
Þáttunum er ætlað að höfða til ungmenna þar sem ljósi er varpað á ólíkar hönnunargreinar með aðgengilegum og áhugaverðum hætti. Þættirnir eru fjórir talsins og voru sýndir á RÚV á þriðjudagskvöldum í maí 2022.
Miðstöðin var til ráðgjafar um innihald þáttana en Logi Pedro, tónlistarmaður og nemi í vöruhönnun í LHÍ var þáttastjórnandi. Meðal viðmælenda má nefna Hafstein Júlíusson og Karitas Sveinsdóttur vöru, og innanhússhönnuði hjá Haf Studio, Arnar Má Jónsson, fatahönnuð, Snæfríð Þorsteins, grafískan hönnuð, Lindu Björg Árnadóttur, fatahönnuð, Óskar Arnórsson, arkitekt, Garðar Eyjólfsson, vöruhönnuð, Sigríði Sigþórsdóttur, arkitekt, Hrefnu Sigurðardóttur og Birtu Rós Brynjólfsdóttur vöruhönnnuði hjá Stúdíó Fléttu og Sigurð Oddsson, grafískan hönnuð.
Þættirnir eru frumlegir, nálgunin fersk og markmiðið að veita áhorfendum áhugaverða og skemmtilega innsýn í störf hönnuða og hvernig hönnun og arkitektúr hefur áhrif á allt okkar líf. Nám í hönnun og arkitektúr nýtur vaxandi vinsælda meðal ungs fólks og mikilvægt að þættirnir veiti góða innsýn inn í stöðu hönnunar hér á landi, og nýtist nemendum og kennurum, sem innblástur, námsefni og heimild.
Þættirnir eru aðgengilegir öllum á hér heimasíðu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs og Listveitu, List fyrir alla.