Skapalón - Grafísk hönnun
Skapalón eru sjónvarpsþættir um hönnun og arkitektúr úr smiðju 101 Productions. Þáttastjórnandi er Logi Pedro, tónlistarmaður og nemi í vöruhönnun við LHÍ. Í þessum þriðja þætti er sjónum beint að grafískri hönnun. Viðmælendur eru hönnuðirnir Sigurður Oddsson, Snæfríð Þorsteins, Hildigunnur Gunnarsdóttir og Maríu Gudjohnsen.
Þættirnir eru frumlegir og ferskir og gefa áhorfendum áhugaverða og skemmtilega sýn inn í störf hönnuða og hvernig hönnun og arkitektúr hefur áhrif á allt okkar líf. Nám í hönnun og arkitektúr nýtur vaxandi vinsælda meðal ungs fólks og mikilvægt að þættirnir veiti góða innsýn inn í stöðu hönnunar hér á landi, og nýtist nemendum og kennurum, sem innblástur, námsefni og heimild.
„Við áttum okkur oft ekki á hvað myndmál, eða grafísk hönnun, skiptir okkur miklu máli. Það er oft ekki fyrr en eitthvað breytist í umhverfi okkar sem við virkilega virkjumst,” Logi Pedro í Skapalón.
Horfðu á þáttinn hér
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og List fyrir alla hlutu styrk úr Barnamenningarsjóði og fengu RÚV og 101 Production til liðs við sig við framleiðslu þáttanna Skapalóns. Þeim er ætlað að höfða til ungmenna þar sem ljósi er varpað á greinar hönnunar og arkitektúrs með aðgengilegum og áhugaverðum hætti. Þættirnir eru fjórir talsins og voru sýndir á RÚV á þriðjudagskvöldum í maí 2022. Miðstöðin var til ráðgjafar um innihald þáttana.