Hönnunarsjóður veitir styrki til margvíslegra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs: þróunar og rannsókna, verkefna og markaðsstarfs auk ferðastyrkja.
Hlutverk Hönnunarsjóðs er að efla þekkingu, atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi en sjóðurinn er fjármagnaður af stjórnvöldum.
Hönnunarsjóður stuðlar einnig að auknum útflutningi íslenskrar hönnunar með því að styrkja kynningar- og markaðsstarf erlendis. Fyrsta úthlutun úr Hönnunarsjóði var árið 2013.
Umsóknarfrestir 2024
Almennir- & ferðastyrkir
1. desember 2023 – 21. febrúar 2024
Úthlutun 21. mars
Almennir- & ferðastyrkir
2. apríl – 19. september
Úthlutun 22. október
Þróunar- og rannsóknarstyrkir
- Er ætlað að styrkja rannsóknir og þróun nýrra hugmynda eða lausna. Verkefni sem hlotið hefur þróunar- og rannsóknarstyrk á möguleika á að fá verkefnastyrk síðar.
Verkefnastyrkir
- Er ætlað að styrkja nýjar hugmyndir eða lausnir sem búið er að þróa og móta og eru komin á útfærslu- og framkvæmdastig. Verkefni sem hlotið hefur verkefnastyrk á möguleika á að fá markaðs- og kynningarstyrk síðar.
Markaðs- og kynningarstyrkir
- Er ætlað að styrkja verkefni sem komin eru af útfærslu- og framkvæmdastigi og eru fullmótuð og tilbúin til markaðssetningar.
Hámarksupphæð almennra styrkja er 10 milljónir króna.
Ferðastyrkir
- Er ætlað að auka möguleika hönnuða og arkitekta á því að taka þátt í erlendum samstarfs- og kynningarverkefnum, sýningum, viðburðum, ráðstefnum eða viðskiptastefnumótum. Hægt er að sækja um ferðastyrk fyrir einn einstakling eða fleiri til sömu ferðar. Mælt er með því að umsækjendur ferðastyrkja vegna sama verkefnis/ferðar sæki um sem hópur en ekki hver fyrir sig. Veittir verða allt að 15 ferðastyrkir í hverri úthlutun að upphæð 150 þúsund hver.
Stjórn Hönnunarsjóðs 2024 - 2025 skipa:
Guðrún Inga Ingólfsdóttir, hagfræðingur, skipuð af menningar- og viðskiptaráðuneyti, formaður stjórnar, Steinunn Vala Sigfúsdóttir, hönnuður, skipuð af menningar- og viðskiptaráðuneyti, Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir, fatahönnuður, Þorleifur Gunnar Gíslason, grafískur hönnuður og Helgi Steinar Helgason, arkitekt skipuð af stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. Varamenn eru þau Kristján Örn Kjartansson, arkitekt, Þórunn Hannesdóttir, vöruhönnuður og Egill Egilsson, vöruhönnuður.
Umsóknum skal skilað rafrænt í sérstöku umsóknarformi sem hægt er að nálgast á vefsíðu sjóðsins.
Hafa samband