Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í fagfélög
    • English
    • Íslenska

Félag íslenskra teiknara

Tilgangur Félags íslenskra teiknara er að gæta hagsmuna teiknara á sviði grafískrar hönnunar, auglýsinga- og myndskreytinga. Félaginu er ætlað að efla og styrkja atvinnugreinina með faglegri fræðslu, sýningum o.fl. Félagið veitir félagsmönnum sínum aðstoð við fagleg og lögfræðileg atriði og gætir réttinda félagsmanna sinna.

Hafa samband: almennt@teiknarar.is

Fylgstu með okkur á samfélagsmiðlum
Facebook
Instagram

Skrá mig í félagið

  • Fréttir
  • Félagatal FÍT
  • Félagið
  • FÍT verðlaunin
  • ADC*E
  • Sagan
  • Lög
  • Heiðursfélagar
  • Fyrirmynd

Íslenski skálinn á 19. alþjóðlegu arkitektasýningu Feneyjatvíæringsins opnaði í dag

Íslenski skálinn á 19. alþjóðlegu arkitektasýningu Feneyjatvíæringsins opnaði í dag en þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt. Lavaforming er djörf hugmynd um mögulega framtíð þar sem rennandi hraun úr iðrum jarðar er notað sem byggingarefni mannvirkja og borga. Sýningin byggir á framsækinni hugmynd sem sýnir tilraunir og tækifæri í notkun á hrauni. Þannig er staðbundinni ógn breytt í auðlind sem lausn við hnattrænum vanda.
8. maí 2025

Íslenski skálinn í Feneyjum: Framtíðarborgin Eldborg

Einn hluti sýningar íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr, Lavaforming, er stuttmynd sem unnin er af s.ap arkitektum í samvinnu við rithöfundinn Andra Snæ Magnason og Jack Armitage tónlistarmann.
6. maí 2025

Ísland tekur þátt í fyrsta skipti: Lavaforming leggur Feneyjar undir sig

Sýningin Lavaforming eftir Arnhildi Pálmadóttur, arkitekt s.ap arkitekta, er fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum í ár og opnar eftir 6 daga. Uppsetning á íslenska skálanum er í fullum gangi. Í ár taka 66 þjóðir þátt og sýningin stendur yfir fram í nóvember. Ísland tekur þátt í Feneyjatvíæringnum í arkitektúr í fyrsta skipti í ár.
2. maí 2025

Viltu taka þátt í að móta framtíð hönnunar og arkitektúrs á Íslandi?

Auglýst er eftir framboðum frá öflugum fulltrúum fagfólks úr baklandi Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs til setu í stjórnum. Um er að ræða einn fulltrúa í hverja stjórn: Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, HönnunarMars, Hönnunarsjóð, Hönnunarverðlaun og Hönnunarlauna. Auk þess er leitað að varamönnum í stjórn Hönnunarsjóðs, dómnefnd Hönnunarverðlauna og Hönnunarlauna.
25. apríl 2025

Aðalfundur Baklands Listaháskóla Íslands 2025

Boðað er til aðalfundar Baklands Listaháskóla Íslands, þriðjudaginn 6. maí n.k. frá 17 - 18.30 í Hannesarholti.
24. apríl 2025

Metnaðar­full mark­mið og stórir sigrar

Við lifum á víðsjárverðum tímum og búum í heimi sem bráðvantar áherslu á samfélag, listir, sköpun, frjálsa hugsun, samveru, mannúð, samskipti fegurð og nýsköpun á forsendum góðs mannlífs, umhverfis, sjálfbærni og gæða. Hlaupum þangað, því þar finnum við stóra sigra. Halla Helgadóttir, framkvæmdstjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, skrifar.
23. apríl 2025

Tákn um kynhlutlaus rými gert opinbert á HönnunarMars

Hugi Þeyr Gunnarsson, grafískur hönnuður, vann sigur úr býtum í samkeppni um tákn um kynhlutlaust rými en verðlaunin voru veitt í gær á sýningunni Tákn fyrir kynhlutlaus rými sem nú stendur yfir á HönnunarMars.
4. apríl 2025

Hraun sem endurnýtanlegt byggingarefni í aðalhlutverki í íslenska skálanum á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr

Það styttist í opnun íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr þar sem sýningin Lavaforming eftir s.ap arkitekta tekur sviðið með Arnhildi Pálmadóttur, arkitekt og listrænan stjórnanda í fararbroddi. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs kynnti í dag frekari upplýsingar um sýninguna og teymið á bak við hana en búist er við að þó nokkur fjöldi íslendinga verði viðstaddur opnunina í byrjun maí.
26. mars 2025

Fyrirlestur um Vík Prjónsdóttur í Listasafni Sigurjóns í Laugarnesi

Nú eru 20 ár frá því að Vík Prjónsdóttir kynnti sína fyrstu vörulínu. Hönnuðurnir Brynhildur Pálsdóttir og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir munu halda fyrirlestur um verkefnið í Lista­safni Sigur­jóns Ólafs­son­ar þriðju­dags­kvöld­ið 11. mars, klukk­an 20:00.
10. mars 2025

Svífandi stígar og samstarf Þykjó og Gagarín hljóta hæstu styrki Hönnunarsjóðs

27 fjölbreytt verkefni á sviði hönnunar og arkitektúrs hlutu styrki Hönnunarsjóðs í fyrri úthlutun ársins sem fór fram í Miðstöð hönnunar og arkitektúrs í Grósku þann 4. mars þar sem 38 milljónir voru til úthlutunar. Alls bárust 122 umsóknir um almenna styrki þar sem sótt var um tæpar 355 milljónir og 48 umsóknir bárums um ferðastyrki.
5. mars 2025

FÍT verðlaunin 2025 – Verðlaunahafar

Hlutverk FÍT verðlaunanna er að viðurkenna þau verk sem skara fram úr á Íslandi í grafískri hönnun og myndlýsingum ár hvert. Alls 41 gull- og silfurverðlaun voru veitt á verðlaunahátíðinni sem haldin var í Grósku í kvöld, föstudaginn 28. febrúar 2025.
28. febrúar 2025

Síðasti séns! umsóknarfrestur á HönnunarMarkað framlengdur til 28 febrúar

Umsóknarfrestur hönnuða á HönnunarMarkað HönnunarMars 2025 verður framlengdur til miðnættis föstudaginn 28 febrúar.
26. febrúar 2025

Fyrirlestur með Ýrúrarí í Listasafni Sigurjóns í Laugarnesi

Ýr Jóhannsdóttir - Ýrúrarí mun kynna verk sín og listsköpun í Listasafni Sigurjóns í Laugarnesi, þriðjudaginn 25. febrúar kl: 20:00.
24. febrúar 2025

HAKK Gallery opnar samsýninguna Snaga

Föstudaginn 28. febrúar kl 17:00 opnar samsýningin Snagar í HAKK Gallery, þar sem 30 hönnuðir, listamenn, handverksfólk og arkitektar sýna veggsnaga í sinni fjölbreyttustu mynd, efni og formi.
24. febrúar 2025

Tilnefningar til FÍT verðlaunanna 2025

FÍT verðlaunin eru árleg fagverðlaun Félags íslenskra teiknara. Hlutverk þeirra er að veita því viðurkenningu sem skarar fram úr á Íslandi í grafískri hönnun og myndlýsingum ár hvert.
21. febrúar 2025

Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt á DesignTalks 2025

Arnhildur Pálmadóttir er fjölhæfur sérfræðingur með frumkvöðlaviðhorf og áherslu á að vinna að breytingum í arkitektúr og mannvirkjagerð. Hún er stofnandi s.ap arkitekta og rekur útibú Lendager arkitektastofunnar á Íslandi. Arnhildur hlaut menningarverðlaun Norðurlandaráðs 2024 og verður fyrsti fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr í vor.
13. febrúar 2025

Ferdinando Verderi á DesignTalks 2025

Ferdinando Verderi ber ábyrgð á sumu af róttækasta myndmáli tískuheims síðasta áratugar með brautryðjandi aðferðum í auglýsingagerð, sem miða að rannsókn nýrra tegunda skilaboða. Mörg verka hans hafa verið leiðandi bæði í auglýsingabransanum og tískuheiminum.
13. febrúar 2025

Saman HönnunarMarkaður - Opið fyrir umsóknir um þátttöku til og með 28. febrúar.

Saman HönnunarMarkaður er nýjung í dagskrá HönnunarMars, en hátíðin fer fram dagana 2. - 6. apríl. HönnunarMarkaður er unnin af teymi Saman ~ menning & upplifun. Markaðurinn, sem verður upptaktur hátíðarinnar er haldinn í fyrsta skipti helgina 29. - 30. mars, í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi, milli 11:00 - 17:00.
12. febrúar 2025

Opið fyrir innsendingar í FÍT verðlaunin

Búið er að opna fyrir innsendingar í FÍT verðlaunin í ár. Innsendingarfrestur er styttri í ár þar sem verðlaunakvöldið verður haldið fyrr en vanalega, eða föstudaginn 28. febrúar. Lokað er fyrir innsendingar mánudaginn 10. febrúar.
30. janúar 2025

Hönnunarsamkeppni Samtakanna ‘78 um tákn fyrir kynhlutlaus rými

Samtökin ‘78 í samstarfi við FÍT, Félag íslenskra teiknara og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, standa fyrir hönnunarsamkeppni um tákn fyrir kynhlutlaus rými, svo sem salerni, búningsklefa, sturtuaðstöðu o.fl.
22. janúar 2025
  • Næsta síða

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200