23 umsóknir bárust um merkingar á ferðamannastöðum og friðlýstum svæðum
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs í samstarfi við umhverfis- og auðlindaráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsti í júlí eftir hönnunarteymi til að hanna merkingar, merkingakerfi og merkingahandbók fyrir ferðamannastaði og friðlýst svæði. Umsóknarfrestur rann út í gær, 12. ágúst, og alls bárust 23 umsóknir.
Verkefnið byggir á stefnumarkandi landsáætlun 2019–2029 og verkefnaáætlun 2019–2021 um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum. Handbókin verður aðgengileg á netinu og er ætluð bæði opinberum aðilum og einkaaðilum. Merkingarnar og merkingakerfið eiga að byggja á fyrri vinnu við merkingar og áður útgefnar merkingahandbækur.
Verkefnið snýst um að hanna og samræma merkingar og merkingakerfi fyrir ferðamannastaði og friðlýst svæði og gerð handbókar með hönnunar- og framleiðsluleiðbeiningum fyrir merkingakerfið. Í verkefninu er stuðst við fyrri vinnu við merkingar og áður útgefnar merkingahandbækur ólíkra aðila sem nú er verið að uppfæra, samræma og aðlaga að nýjum tímum.
Valnefnd fer nú yfir allar umsóknir, og velur í kjölfarið 2-5 teymi sem fá tækifæri til hitta valnefnd og kynna sig, nálgun við verkefnið, hugmyndafræði og fyrri verk. Úr þeim hópi verður eitt teymi valið til að vinna verkefnið. Gert er ráð fyrir að niðurstaða valnefndar liggi fyrir 28. ágúst næstkomandi. Vinna hönnunarteymis hefst í kjölfarið og áætlað er að henni ljúki 10. desember 2020.
Hér má sjá tímalínu verkefnisins
18. ágúst Tilkynnt um forval valnefndar
25. ágúst Valin teymi hitta valnefnd og kynna nálgun sína við verkefnið
28. ágúst Tilkynnt hvaða teymi fær verkefnið
15. desember Áætluð verklok
Valnefndina skipa
Anna María Bogadóttir, arkitekt og menningarfræðingur
Einar Sæmundsen, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, landslagsarkitekt
Jón Björnsson, þjóðgarðsvörður í Þjóðgarðinum Snæfellsjökull
Kristján Örn Kjartansson, arkitekt
Ragnar Freyr Pálsson, grafískur hönnuður
Stefanía Ragnarsdóttir, fræðslufulltrúi í Vatnajökulsþjóðgarði, grafískur hönnuður
Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt
Áherslur valnefndar eru eftirfarandi:
● Þverfagleg breidd teymis
● Hugmyndafræði og nálgun við verkefnið
● Heildræn hugsun
● Fyrri verk og geta til að leysa stór og flókin verkefni
● Áhugi og þekking á náttúru landsins
● Samsetning teymis, m.a. með tilliti til kynjaskiptingar