66°Norður hlýtur viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun á Hönnunarverðlaunum Íslands 2020
Hönnunarverðlaun Íslands 2020 voru afhent með rafrænum hætti þann 29. Janúar. Hönnunarfyrirtækið 66°Norður hlaut viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun á Hönnunarverðlaununum 2020 og var það Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins sem veitti eigendum 66°Norður, Bjarneyju Harðardóttur og Helga Rúnari Óskarssyni ásamt hönnunarteymi fyrirtækisins viðurkenninguna.
Rökstuðningur dómnefndar:
Viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun árið 2020 fær 66°Norður sem stofnað var árið 1926 til að mæta lífsnauðsynlegri þörf fyrir vinnufatnað fyrir sjómenn og síðar björgunarsveitafólk. Vörumerkið hefur þróast í áranna rás og nú sem útivistarfatnaður í hæsta gæðaflokki með sterka tengingu við arfleið fyrirtækisins og í takti við strauma tískunnar.
Sérstaða 66°Norður er án efa fagmennska sem einkennir vörumerkið og hæfileiki til að lesa í samtímann hvort sem verið er að hanna tæknilegan útivistarfatnað, markaðsefni eða í tilraunakenndu samstarfi við íslenska og erlenda hönnuði.
66°Norður er skýrt dæmi um það þegar góð hönnun er leiðandi afl í vexti og þróun fyrirtækis, en um 15 manns starfa í hönnunarteymi þess.
Það var Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, sem afhenti viðurkenninguna og kom inn á það í ræðu sinni að með „þessari viðurkenningu er ætlunin að draga fram mikilvægi þess að hönnun sé höfð að leiðarljósi frá upphafi verka með það að markmiði að auka verðmætasköpun og styrkja samkeppnishæfni. Um leið er viðurkenningin hvatning til fyrirtækja að nýta hönnun til að ná forskoti í samkeppni. Við valið er horft til þess að hönnunin sé einstök og framúrskarandi.“
Helgi Rúnar Óskarsson og Bjarney Harðardóttir, eigendur 66°Norður tóku við viðurkenningunni og í ræðu sinni kom Helgi Rúnar inn á þá miklu arfleifð sem fyrirtækið sækir í í sinni hönnun og þau tækifæri sem felast í skapandi greinum á Íslandi. „Við lítum svo á að það sé mikið tækifæri til að fá fjárfestingu erlendis frá í skapandi greinar. Fjárfestar trúa á íslenska hönnun og íslenskt handverk.“
Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt í fyrsta sinn árið 2014 og varpa ljósi á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast. Verðlaunin beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning.
Besta fjárfesting í hönnun er viðurkenning sem veitt var í fyrsta sinn 2015. Fyrirtæki sem eiga þess kost að hljóta viðurkenninguna Besta fjárfesting í hönnun hafa hönnun og arkitktúr að leiðarljósi frá upphafi verka til að auka verðmætasköpun og samkeppnishæfi. Öll fyrirtæki sem starfa á Íslandi koma til greina.
Í dómnefnd Hönnunarverðlaun Íslands 2020 sátu:
Sigríður Sigurjónsdóttir formaður, Hönnunarsafn íslands
Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, LHÍ
Sigrún Unnarsdóttir, fatahönnuður MH&A
Þorleifur Gíslason, grafískur hönnuður MH&A
Paul Bennett, hönnunarstjóri IDEO, MH&A
Margrét Kristín Sigurðardóttir, SI
Hörður Lárusson, grafískur hönnuður MH&A
Sigrún Birgisdóttir, arkitekt, LHÍ
Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Landsvirkjun, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.