DesignTalks talks - Þáttur 1: Valdís Steinarsdóttir og Halldór Eldjárn
DesignTalks talks er hlaðvarp um hönnun og arkitektúr, fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og fjallar um víðtæk áhrif greinanna í samfélaginu og ástríðuna sem liggur þar að baki. Viðmælendur fyrsta þáttar eru þau Valdís Steinarsdóttir vöruhönnuður og Halldór Eldjárn, listamaður.
Hlaðvarpið er samtalsvettvangur þar sem fjallað er um hönnun og arkitektúr í allkyns samhengi með frábærum gestum. Nýsköpun, tækni, samfélagslegar áskoranir, loftslagsmál og hvað-eina, af því að þannig er hönnun: snertir við öllu og getur verið mikilvægur drifkraftur nýsköpunar og samfélagslegra framfara. Þættirnir eru fimm talsins.
Hlín Helga Guðlaugsdóttir, hönnuður og stjórnandi DesignTalks hefur umsjón með hlaðvarpinu, sem er framleitt af Studio HönnunarMars og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Tæknimaður er Þorbjörn G. Kolbrúnarson og Halldór Eldjárn samdi stefið..
Fyrstu þátturinn ber yfirskriftina Af tilraunum, tækni, nýjum leiðum - og trylltum áhuga þar sem þau Valdís Steinarsdóttir vöruhönnuður, sem farið hefur óhefðbundnar leiðir og Halldór Eldjárn, listamaður sem vinnur með tónlist, forritun, vísindi og hönnun ræða um sköpun, tilraunir, tækni, nýjar leiðir - og trylltan áhuga.