Hönnunarsamkeppni: Viðbygging og endurbætur á Ráðhúsi Akureyrarbæjar
Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrabæjar óskar eftir umsóknum arkitekta/teiknistofa um þátttöku í forvali fyrir boðskeppni vegna viðbyggingar við Ráðhúsið á Akureyri, endurbætur á hluta núverandi húss og endurhönnun á lóð og aðkomu Ráðhússins.
Um er að ræða opið forval þar sem valin verða 4 hönnunarteymi til að taka þátt í samkeppni á grundvelli hæfni og fyrri reynslu og verður eitt af þeim "Wild Card" (sjá frekari upplýsingar í forvalsgögnum).
Forvalsgögn eru aðgengileg og verða afhent á rafræna útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með mánudeginum 1. mars 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt á útboðsvefnum í síðasta lagi að miðnætti, kl. 24.00, þriðjudaginn 30. mars 2021. (Skilafrestur var auglýstur áður kl. 16.00, þriðjudaginn 30. mars, en þar sem tímasetning kom ekki fram í forvalsgögnunum sjálfum hefur verið ákveðið að framlengja fresti til miðnættist þar sem þessa ósamræmis gættis í gögnum).
Um er að ræða viðbyggingu sem hýsi meðal annars skrifstofur sviða Akureyrarbæjar, fundarrými, mötuneyti, móttöku og önnur rými sem þarf fyrir starfsemina. Einnig þarf að endurskoða innra skipulag Ráðhússins og tengja það við viðbygginguna ásamt endurhönnun á lóð.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í forvalinu.
Valnefnd:
- Hulda Sif Hermannsdóttir, aðstoðarmaður bæjarstjóra Akureyrarbæjar
- Kristján Örn Kjartansson, arkitekt FAÍ
- Sigurjón Jóhannesson, umhverfis- og mannvirkjaráði Akureyrarbæjar
- Una Eydís Finnsdóttir, arkitekt FAÍ
- Valbjörn Ægir Vilhjálmsson, byggingafræðingur BF
Dómnefnd:
- Ágúst Hafsteinsson, arkitekt FAÍ
- Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar
- Birkir Ingibjartsson, arkitekt FAÍ
- Hildur Ýr Ottósdóttir, arkitekt FAÍ
- Jana Salóme Jósepsdóttir, áheyrnarfulltrúi í umhverfis- og mannvirkjaráði Akureyrarbæjar
Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og er auglýst á EES-svæðinu.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar í gegnum netfangið umsarekstur@akureyri.is