Kalda og Shoplifter sameina heima sína í nýrri skólínu
Skóhönnuðurinn Katrín Alda Rafnsdóttir og listakonan Hranfhildur Arnardóttir, Shoplifter, frumsýndu nýja skólínu á dögunum þar sem klassískir skór Kalda læðast inn í myndheim Hrafnhildar.
Hárgreiðslur úr mannshári, litað af hárlitunarmeistararnum Steinunni Ósk sem gerir hvert skópar einstakt. Eitt parið er til dæmis nefnt í höfuðið á listakonunni, Shopi´s hair, en það er litað eins og litríkt hár Hrafnhildar.
„Hönnunarferlið byrjaði hjá okkur fyrir rúmu ári og þetta er búið að vera súper skemmtilegt,“ segir Katrín Alda í samtali við Vísi.is
Skórnir eru til í verslun Kalda við Grandagarð 79