Kosningafundur í Grósku 6. nóvember kl. 8:30 - 10:00.
Undanfarin ár hafa hagrænar mælingar sýnt fram á öran vöxt og fjölgun starfa innan skapandi greina. Innan þeirra felast mikil og vannýtt tækifæri til nýrrar nálgunar og nýsköpunar í atvinnulífi og samfélagi, enda eru jákvæð áhrif menningar og skapandi greina á lífsgæði, mannlíf og samfélag óumdeild.
Fulltrúar allra framboða til alþingiskosninga taka þátt og mun Ágúst Ólafur Ágústsson, hagfræðingur, kynna og stýra umræðum.
Fundurinn er öllum opinn og verður honum streymt. Boðið verður uppá kaffi og bakkelsi fyrir fundinn.
Að fundinum standa Rannsóknarsetur í skapandi greinum, Samtök Skapandi greina, Miðstöð íslenskra bókmennta, Miðstöð hönnunar og arktitektúrs, Myndlistamiðstöð, Kvikmyndamiðstöð, Sviðslistamiðstöð og Tónlistarmiðstöð í samstarfi við CCP, Brandenburg, Vísindagarða og Grósku.