Kynningarfundur um kerfisbundinn frágang

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) boðar til kynningarfundar um aðferðarfræði kerfisbundins frágangs föstudaginn 20. október kl 10:00 – 11:30 á Hótel Nordica. Verktakar, hönnuðir og framkvæmdaaðilar hins opinbera eru sérstaklega boðin velkomin á fundinn. FSRE stefnir á innleiðingu kerfisbundins frágangs í verkefnum sínum.
Aðferðarfræði kerfisbundins frágangs (systematisk ferdigstillelse) hefur verið innleidd í Noregi til að koma í veg fyrir galla og misræmi í verkefnum. Í því felst að fylgja ákveðnum kerfisbundnum ferlum í hönnun, framkvæmd, við afhendingu og á reynslutíma, þar til ábyrgðartíma lýkur.
Dagskrá:
- Forstjóri FSRE – Óskar Jósefsson, forstjóri FSRE
- Vandamálin sem Kristján Haukur Flosason, Iðnaðartækni stendur frammi
- Kerfisbundinn frágangur – Gunnlaugur Trausti Vignisson, HENT Noregi
- Kaffihlé
- Dæmi um KF í Noregi – Gunnlaugur Trausti Vignisson, HENT Noregi
- Umræður
Allir verktakar, hönnuðir og framkvæmdafólk hjá hinu opinbera eru hvött til að mæta á fundinn, en einnig verður hægt að taka þátt í gegnum fjarfund.
