Opið fyrir umsóknir
Minningarsjóður dr. Phil. húsameistara Guðjóns Samúelssonar auglýsir eftir umsóknum um styrkveitingar úr sjóðnum fyrir árið 2021 en hlutverk sjóðsins er að útbreiða þekkingu á íslenskri húsagerðarlist.
Styrkveitingar munu að þessu sinni nema allt að kr. 1.500.000.
Umsóknum skal skila rafrænt á netfangið minningarsjodur@ai.is. Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2021.
Umsókn
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram í umsókninni:
- Nafn á verkefni
- Stutt lýsing á verkefni (max 300 orð)
- Hver kemur að verkefninu + ferilskrá viðkomanda
- Nánar um verkefnið (max 1000 orð)
- Hvernig mun verkefnið úbreiða þekkingu á íslenskri húsagerðarlist (gildi verkefnis)
- Verk-og tímaáætlun
- Kostnaðaráætlun
- Viðbótargögn og frekari upplýsingar geta fylgt með sem viðhengi.
Um sjóðinn
Minningarsjóður Guðjóns Samúelssonar var stofnaður 24. nóvember 1990 í samræmi við erfðaskrá Guðjóns frá árinu 1948. Tilgangur sjóðsins er að útbreiða þekkingu á húsagerðarlist í íslenskum anda samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins.
Minningarsjóðurinn hefur veitt styrki frá árinu 1995. Styrkveitingin hefur oftast farið fram í tengslum við afmælisdag Guðjóns Samúelssonar en hann var fæddur 16. apríl 1887 og dó 25. apríl 1950, fimm dögum eftir vígslu Þjóðleikhússins.
Formaður stjórnar sjóðsins 2021 er Sigríður Maack, formaður AÍ. Aðrir í stjórn eru Sigríður Magnúsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir og Garðar Snæbjörnsson, félagar í AÍ og Erling Jóhannesson forseti BÍL, sem tilnefndur er af stjórn BÍL.