Takk fyrir frábæran HönnunarMars 2019 - hér eru þær sýningar sem eru áfram opnar
Þá er enn einum frábærum HönnunarMars lokið og fjöldi manns sem hefur verið að drekka í sig hönnun alla vikuna á sýningarflakki um borg og bæ. Við þökkum kærlega fyrir frábærar viðtökur og vel heppnaða hátíð.
Ef þú misstir af einhverjum sýningum um helgina þá skaltu ekki örvænta því sumir eru með framlengdan opnunartíma:
Ilmsturtan í Fischer verður opin og hönnuðir verða viðstaddir þriðjudaginn 2. apríl frá 15:00-17:00, fimmtudaginn 4. apríl frá 12:00-14:00 og laugardaginn 6. apríl frá 14-16.
Fólk Reykjavík ætlar að hafa opið í sýningarrýminu sínu í gömlu rakarastofunni á Klapparstíg 29 út þessa viku.
Studíó Portland á Baldursgötu 36 er einnig með opið til og með föstudagsins 5 apríl frá 13-17.
Now Nordic sýninginí Hafnarhúsinu verður opin til 26.maí. Í Hafnarborg verða sýningarnar Fyrirvari og Teikningar/skissur í leir og textíl opnar til 26.maí.
Á Hönnunarsafni Íslands verður sýningin Urban Shapes opin til 8.september og Veðurvinnustofa Shu Yi til 2 júní.
Í Norræna húsinu verður hægt að berja stólasýninguna Sustainable Chairs eða Sjálfbærir stólar út vikuna.
Verslunin Akkúrat ætlar einnig að leyfa samsýningu íslenskra hönnuða að vera áfram eitthvað næstu daga.
Takk fyrir og sjáumst svo hress að ári!