ARKÍS arkitektar auglýsa eftir arkitektum
Vegna aukinna verkefna leitar ARKÍS arkitektar að arkitektum til þess að verða hluti af þverfaglegu teymi stofunnar.
Framundan eru mörg spennandi verkefni á Íslandi jafnt sem erlendis og því um skemmtileg og gefandi atvinnutækifæri að ræða. Við leitum að arkitektum með nokkurra ára reynslu og gott vald á flestum þáttum arkitektahönnunar. Rík áhersla er lögð á frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð en jafnframt áhersla á að geta unnið vel í teymi. Þá er góð reynsla af Revit mikill kostur.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknum skal skilað til ARKÍS arkitekta ehf. með tölvupósti á netfangið arkis@ark.is.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknir skulu berast fyrir 23. janúar.
Um ARKÍS
ARKÍS arkitektar er framsækin arkitektastofa á sviði byggingarlistar, hönnunar og skipulags. Frá stofnun, árið 1997, hefur ARKÍS starfað bæði innanlands og á alþjóðamarkaði og unnið að fjölbreytilegum verkefnum fyrir einkaaðila og opinberar stofnanir. Í dag starfa 40 starfsmenn hjá fyrirtækinu bæði í Kópavogi og á Selfossi. Þá er fyrirtækið vottað samkvæmt ISO 9001:2015 og ISO 14001:2015 ásamt því að vera með jafnlaunavottun ÍST-85. ARKÍS starfar eftir þeirri meginhugsun að öll hönnun mannvirkja snúist um að skapa umhverfi og aðstæður sem auka lífsgæði. Þá skuldbindur ARKÍS sig til að stuðla að sjálfbærni byggðar