Alexander Jean Le Sage de Fontenay
Alexander Le Sage de Fontenay (f. 1991) er grafískur hönnuður með fjölbreyttan bakgrunn, sem starfar hjá Brandenburg og vinnur einnig sjálfstætt. Hann hefur reynslu sem dagskrárgerðarmaður, blaðamaður, viðburðaskipuleggjandi og plötusnúður. Hann lauk námi í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands (2021) og hefur einnig gráðu í listfræði frá Háskóla Íslands (2018). Hann var í starfsnámi á hönnunarstofunni karlssonwilker í New York 2022-23.
Weimar Walking: Prentútgáfa í 100 eintökum, fyrir ritgerðir nemenda um sýningarstjórnuná tímum COVID-19. Stofnun: Bauhaus-listaháskólinn í Weimar og NOVA verkefnarými. Útgefandi: Lucia Verlag
Leturtákn fyrir íslensku raftónlistarútgáfuna Sweaty Records árið 2021.
Plötuumslag fyrir hinn íslenska Volruptus og ástralska Jensen Interceptor. Útgáfa: íslenska raftónlistarútgáfan Sweaty Records í Berlín árið 2021.
Myndskreyting eftir Björn Heimir Önundarson. Leturhönnun og umbrot eftir mig.
Sýningarskrá fyrir samsýninguna ‘Öll brögð möguleg’. 500 sýningarskrár voru risograph-prentaðar af ‘Prenti og vinum’ í bubblegum, bláu og svörtu á 150g Munken Polar Rough pappír.
Diskó í Studio 54 í New York. / Acid house á The Haçienda í Manchester. / Techno hjá Berghain í Berlín. ‘The Power To Arouse Curiosity’ er nýja risógraph prent sem fagnar klúbbmenningu, tjáningarfrelsi og sköpunargáfu.
Silkiþrykk og veggspjaldahönnun fyrir verkstæðissýninguna 'Pressa' á Seyðisfirði 2020. Þar má sjá prentvél í eigu Dieter Roth og svo nýtti ég ‘Seperat’ — fallega leturgerð eftir Or Type á leikrænan hátt.
Tvíhliða, A1 veggspjald með myndrænum þráðum og upplýsingum úr BA-ritgerðinni minni. Önnur hliðin er helguð íslensku vínylplötunni og hin árin 1975-80 — mikilvægur tími í árdaga íslenskrar tónlistarframleiðslu.
Risograph prent innblásið af Seyðisfirði með keim af seventís Dieter Roth. Spurningar um heimili vakna. Miðpunktur athyglinnar er appelsínugulur, bústinn og svalur köttur sem laumast í kringum ruslatunna í hverfinu mínu í Reykjavík. Mjá.
‘Encouragements’ (2020)
vatnslitur, spreimálning, varalitur og kol á 150g Hahnemühle pappír • 29,7 x 42 cm • Sería af 5 / Upplag: 1
Sýningin mín „DRA$L“ sem var til sýnis í verkefnarýminu FLÆÐI í tvær vikur sumarið 2020. Tilraunaferli þar sem hita- og risographprentun er blandað saman. Sambandið á milli þess fagurfræðilega og ljóta skoðað.