Hjördís Sigurgísladóttir / ARKHD
Hjördís lauk MArch námi við Virginia Tech háskólann í Bandaríkjunum. Hún rekur stofuna ARKHD-Arkitektar Hjördís & Dennis ásamt Dennis Davíð Jóhannessyni. Þau hafa unnið til verðlauna m.a. um Sendiherrabústað Íslands í Berlín, viðbyggingu við Laugarnesskóla í Reykjavík og lítið garðhús í Alþjóðlega Sýningarverkefninu “Kolonihaven The International Challenge”. Þau eru höfundar bókarinnar "Straumar frá Bretlandseyjum-Rætur íslenskar byggingarlistar" sem kom út 2021.