Sýningar
SAMTVINNAÐ, sýning í Anarkíu
Textílfélagið opnaði sýninguna SAMTVINNAÐ í Anarkíu listasal í Kópavogi laugardaginn 29. okt 2016. Tuttugu og þrjár félagskonur tóku þátt í þessari sýningu og sýndu bæði myndverk og hönnun.
Þær sem áttu verk á sýningunni eru:
Aðalbjörg Erlendsdóttir, Anna Gunnarsdóttur, Auður Vésteinsdóttir, Ásta V. Guðmundsdóttir, Bryndís G. Björgvinsdóttir, Guðlaug Halldórsdóttir, Guðrún J. Kolbeins, Guðrún Hadda Bjarnadóttir, Hanna Pétursdóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Ingiríður Óðinsdóttir, Íris Ólöf Sigurjónsdóttir, Jóna Imsland, Lilý Erla Adamsdóttir,
Ragnheiður Guðmundsdóttir, Ragnheiður B. Þórsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir,
Sigríður Elfa Sigurðardóttir, Sigrún Lára Shanko, Sólrún Friðriksdóttir, Þorgerður Hlöðversdóttir og Þóra Björk Schram.
Textílfélagið var stofnað árið 1974 með það að markmiði að kynna list félagsmanna og hönnun, bæði á innlendum og erlendum vettvangi og er félagið meðal aðildarfélaga Hönnunarmiðstöðvar Íslands og SÍM, Sambands íslenskra myndlistarmanna. Sýningunni lauk 20. nóv 2016.
FLÓÐ á Hönnunarmars 2016
Textílfélagið tók þátt í Hönnunarmars 2016 og hélt sýningu á Seltjarnarnesi.