Íslensk samtímahönnun
Sýningin Íslensk samtímahönnun - húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr opnaði fyrst á Listahátíð í Reykjavík á Kjarvalsstöðum í maí 2009. Síðan hefur sýningin verið sett upp í Ketilhúsinu á Akureyri, í Dansk Design Center í Danmörku,í Nordic Lighthouse í Shanghai í Kína, í Peking í 751, stærsta lista- og hönnunarhverfi borgarinnar, í Stokkhólmi á Stockholm Furniture Fair í febrúar 2011 og á hönnunarvikunni í Tallin í september 2011.
Ferðalok sýningarinnar var í Helsinki en þar markaði opnun sýningarinnar í Design Forum Finland í Helsinki upphafið að víðfeðmu samstarfi milli íslenskra hönnuða og World Design Capital Helsinki 2012, en HönnunarMars var svokallað „satellite” verkefni World Design Capital Helsinki 2012.
Ferðalag sýningarinnar á árunum 2009-2012 þjóðaði hlutverki kynningar á gróskumikilli íslenskri hönnunarsenu og í kring um hana sköpuðust ótal tengingar og tækifæri fyrir íslenska hönnuði. Auk þess lék hún lykilhlutverk í því að byggja upp HönnunarMars sem alþjóðlegan hönnunarviðburð.
Á sýningunni var sýnd íslensk samtímahönnun þar sem var unnið með tengsl þriggja hönnunargreina sem eiga stóran þátt í því að móta manngert umhverfi með samspili sín á milli. Á sýningunni var samhengi þeirra skoðað og hvernig greinarnar eru samofnar mannlegri hegðun allt frá því að eiga þátt í að skipuleggja tímann, væta kverkarnar eða verja okkur fyrir náttúruhamförum.
Sýnd voru gríðarstór mannvirki og fínleg nytjahönnun sem áttu þó það sameiginlegt að tilheyra manngerðu umhverfi og vera mótandi þáttur í því.
Sýningunni var ætlað að vera spegill þess sem telja mátti á einn eða annan hátt gæði í íslenskri hönnun á undanförum árum og gefa ákveðna mynd af íslenskri samtímahönnun. Þar sem góðar hugmyndir hafa þroskast af faglegum metnaði, alvöru og skynsemi; hugmyndir sem eru unnar til enda í anda hugsunarháttar sem vert er að setja á oddinn í dag. Markmiðið var að árétta gildi góðrar hönnunar og öflugs hugvits fyrir mannlegt samfélag - verðmæti til að virkja til framtíðar.
Ljósmyndir frá sýningunni sem var fyrst sett upp á Listahátíð í Reykjavík á Kjarvalsstöðum 2009.
Ljósmyndari: Ingvar Högni Ragnarsson
Samhliða hönnunarsýningunni var kynning á verkum ungra, efnilegra hönnuða í samvinnu við Hönnunarsjóð Auroru.
Sýningin var samstarfsverkefni Hönnunarmiðstöðvar Íslands, Utanríkisráðuneytis, Mennta- og menningarmálaráðuneytis, Iðnaðarráðuneytis, Útflutningsráðs Íslands og Hönnunarsjóðs Auroru.
Sýningarstjóri: Elísabet V. Ingvarsdóttir
Sýningarhönnun: Kurtogpí í samstarfi við Atelier Atli Hilmarsson
Hönnuðir og verk á sýningunni:
Katrín Ólína
Cristal Bar, Hong Kong
Landslag ehf
Siglufjörður Avalanche barriers
Basalt architects
Blue Lagoon Clinic
Studio Granda
Hof Country residence
Landmótun
Lækurinn
Rut Kára
Home
+ Arkitektar
Hótel Borg renovation
pk-arkitektar
Birkimörk
Kurtogpi
Borgarfjörður High School
Tinna Gunnarsdóttir
Fly
Kristín Sigfríður Garðarsdóttir
Blown glass
Ingibjörg Hanna
Krummi - Bird Coat Hanger
Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir
Visual inner structure
Stella Design
My family
Go Form
MGO 182 & MGO 500
Sigríður Sigurjónsdóttir & Snæfríð Þorsteins
Shelve life
Stefán Pétur Sólveigarson
Skrauti
Hrafnkell Birgisson
Hoch Die Tassen
Snæfríð Þorsteins & Hildigunnur Gunnarsdóttir
2922 days
DÖGG DESIGN
Rocky Tre
Sóley Þórisdóttir
Utensils
Erla Sólveig Óskarsdóttir
Sproti & Spuni
Dagur Óskarsson
Dalvík - sled
Jón Björnsson
Flower Eruption
Friðgerður Guðmundsdóttir
Stuðlar