Hvar kaupum við íslenska hönnun?
Á þessum tíma árs er tilvalið að hvetja alla til að kynna sér fjölbreytt og gott úrval íslenskrar hönnunar. Á heimasíðu okkar má finna yfirlit yfir verslanir sem selja íslenska hönnunarvöru, bæði búðir sem selja vörur frá ólíkum hönnuðum, hönnuðir sem eru að selja sjálfir og netverslanir.
Markmið síðunnar er að vera leiðbeinandi og í senn upplýsandi og sömuleiðis að beina sjónum að grósku íslenskrar hönnunar og öllu því fjölbreytta úrvali sem hér er að finna.
Kíktu við!