Hvar kaupum við íslenska hönnun?
Á þessum tíma árs er tilvalið að kynna úrvalið og hér á heimasíðunni má finna aðgengilegt yfirlit yfir verslanir sem selja íslenska hönnunarvöru, bæði búðir sem selja vörur frá ólíkum hönnuðum, hönnuðir sem eru að selja sjálfir og netverslanir.
Markmið síðunnar er að vera leiðbeinandi og í senn upplýsandi yfirlit sem beinir sjónum að grósku íslenskrar hönnunar og öllu því fjölbreytta úrvali sem hér er að finna.
Við mælum með að gefa síðunni gaum, en þar er að finna allt frá borðbúnaði, fatnaði, húsgögnum, húsmunum, heilsutengdum vörum og allt þar á milli frá íslenskum hönnuðum.