35.000 íbúðir á 10 árum: Hvernig er best að gera þetta?
Á HönnunarMars í ár ætlar Arkitektafélag Íslands, í samstarfi við Grænni byggð og Húsnæðis og mannvirkjastofnun (HMS) að standa fyrir málstofu þar sem gæði, umhverfið og samfélag er sett í fyrsta sæti.
Í nýrri húsnæðisáætlun ætla ríki og sveitafélög að tryggja byggingu 35.000 nýrra íbúða á landinu á næstu 10 árum. Nú er tækifæri til þess að við gerum okkar allar besta og sköpum íbúðir og hverfi sem setja fólk og umhverfið okkar í fyrsta sæti. En hvernig gerum við þetta?
Málstofan fer fram 5. maí kl. 14.00 í Grósku, stóra fyrirlestrarsalnum.
Erindi flytja:
- Anna María Bogadóttir, arkitekt og rithöfundur
- Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt
- Friðgeir Einarsson, rithöfundur
- Kristján Örn Kjartansson, arkitekt
Panell er tvískiptur en þar mæta:
- Andri Snær Magnason, rithöfundur
- Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt
- Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, skipulagsfræðingur
- Borghildur Sturludóttir, arkitekt
- Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur
- Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri Jáverk
- Hermann Jónsson, forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS)
- Jóhannes Þórðarson, arkitekt
- Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins (SI)
- Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
- Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt
Fundarstjóri: Brynja Þorgeirsdóttir
Öll velkomin!