Hvað nú? Dagskrá HönnunarMars 2023 er komin í loftið
HönnunarMars breiðir úr sér um höfuðborgarsvæðið dagana 3. - 7. maí næstkomandi en í ár ber hátíðin yfirskriftina Hvað nú? (e. What now?). Fjölbreytta dagskrá má nú kynna sér á heimasíðu hátíðarinnar.
Hvað er að gerast núna? Hvað tekur við? Hvað ber framtíðin í skauti sér?
HönnunarMars er boðberi nýrra hugmynda, innblásturs, skapandi lausna og bjartsýni þar sem framsækin hönnun og nýjungar leiða saman sýnendur og gesti.
Í ár munu 100 sýningar, 400 þátttakendur og 100 viðburðir endurspegla það sem helst er að gerast á sviði hönnunar og arkitektúrs, veita innsýn inn í nýjar lausnir og hugmyndir og sýna nýjar leiðir til að takast á við áskoranir samtímans til innblásturs fyrir þátttakendur og gesti.
Skapandi tilraunir, endurvinnsla, nýsköpun, endurnýting, verðmætasköpun og leikur eru rauður þráður í dagskránni þar sem ólíkar hönnunargreinar á borð við arkitektúr, grafíska hönnun, fatahönnun, vöruhönnun og stafræna hönnun varpa ljósi á þá miklu grósku sem á sér stað í hönnun hér á landi.
HönnunarMars fer fram í upphafi sumars, 3. - 7. maí undir yfirskriftinni „Hvað nú?, hún er ein af borgarhátíðum Reykjavíkurborgar og framleidd af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Hátíðin er haldin í 15 sinn í ár en hún hefur farið fram árlega frá 2009.
Sjáumst á HönnunarMars!