Arkitektúr sem afl í kennslu
Fimmtudaginn 29. febrúar verður haldið í Norræna húsinu erindið Arkitektúr sem afl í kennslu þar sem arkitektarnir Guja Dögg Hauksdóttir og Pihla Meskanen, sem einnig er menntaður uppeldisfræðingur, miðla reynslu sinni og þekkingu. Viðburðurinn hefst kl. 15.30 og fer fram í Elissa salnum í Norræna húsinu. Öll velkomin!
Kennurum, fræðslufulltrúum, foreldrum og þeim sem hafa áhuga á miðlun og þróun kennsluefnis er boðið til að hlýða á erindi þar sem Guja Dögg Hauksdóttir og Pihla Meskanen miðla af reynslu sinni og frumkvöðlastarfi í þróun á kennsluefni. Kennsla í byggingarlist snertir á margvíslegum þáttum sem stuðla að því að þroska þverfaglegar úrlausnir verkefna, auka gildi fagurfræðilegra- og huglægra þátta og styrkja persónuleg tengsl nemanda við viðfangsefni sitt. Umhverfi hefur mikil áhrif á hugsun okkar og líðan en ekki síður á sjálfsmynd og menningarlega heimsmynd. Meðvitund um áhrifaþætti umhverfis, er valdeflandi og mikilvægt tæki til að opna augu barna og ungmenna fyrir gagnrýnni hugsun. Ókeypis er inn á viðburðinn sem í heild sinni er einn og hálfur klukkutími og gefur rými fyrir spurningar og samtal. Boðið verður uppá léttar veitingar. Aðgengi í Elissa (salur) er gott. Aðgengileg og kynhlutlaus salerni eru á sömu hæð. Athugið að viðburðurinn fer fram á ensku en velkomið er að spurja spurninga á íslensku.