Bleika slaufan 2022 hönnuð af Helgu Friðriksdóttur og Orra Finnbogasyni hjá Orrifinn Skartgripum
Bleika slaufan í ár er hönnuð af Helgu Friðriksdóttur og Orra Finnbogasyni hjá Orrifinn Skartgripum. Slaufan fer í sölu í dag, 30 september en um er að ræða árlegt átak Krabbameinsfélagsins tileiknað baráttu gegn krabbameini í konum.
Helga og Orri hófu samstarf sitt árið 2012 og hafa síðan hannað og smíðað undir nafninu Orrifinn Skartgripir. Þau reka verslun og verkstæði að Skólavörðustíg 43 þar sem þau selja skartgripalínur sínar. Helga er sjálf með BRCA genið og er því mjög mikið með hugann við þennan málstað. Þau bera mikla virðingu fyrir þessu verkefni og finnst mikill heiður að vera treyst fyrir hönnun slaufunnar.
„Það var algjör hugljómun að vinna Bleiku slaufuna eins og hún væri hluti afFléttuskartgripalínunni okkar. MerkingFléttutalar tungumál Bleiku slaufunnar fullkomlega, hún stendur fyrir umhyggju og vináttu. Slaufan er fléttuð úr þráðum, hver þráður gæti táknað hvert og eitt okkar og hvernig við leggjum málstaðnum lið. Við erum sterkust saman eins og átak Bleiku slaufunnar hefur sýnt" segir Helga.