Listamannlaun - umsóknarfrestur til 3. október
Búið er að opna fyrir umsóknir til listamannalauna 2023 en frestur rennur út þann 3. október næstkomandi.
Listamannalaun er fyrir sjálfstætt starfandi hönnuði, myndlistarmenn, rithöfunda, sviðslistafólk, tónlistarflytjendur og tónskáld. Tilgangur þeirra er að efla listsköpun í landinu en það er Alþingi sem veitir árlega fé af fjárlögum til þess að launa listamenn í samræmi við lög.
Umsóknafrestur rennur sem fyrr segir út þann 3. október kl. 15:00