DesignTalks talks - Þáttur 4: Arnhildur Pálmadóttir
DesignTalks talks er hlaðvarp um hönnun og arkitektúr, fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og fjallar um víðtæk áhrif greinanna í samfélaginu og ástríðuna sem liggur þar að baki. Viðmælandi fjórða þáttar er Arnhildur Pálmadóttir arkitekt, stofnandi arkitektastofunnar s.ap.
Hlaðvarpið er samtalsvettvangur þar sem fjallað er um hönnun og arkitektúr í allkyns samhengi með frábærum gestum. Nýsköpun, tækni, samfélagslegar áskoranir, loftslagsmál og hvað-eina, af því að þannig er hönnun: snertir við öllu og getur verið mikilvægur drifkraftur nýsköpunar og samfélagslegra framfara. Þættirnir eru fimm talsins.
Hlín Helga Guðlaugsdóttir, hönnuður og stjórnandi DesignTalks hefur umsjón með hlaðvarpinu, sem er framleitt af Studio HönnunarMars og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Tæknimaður er Þorbjörn G. Kolbrúnarson og Halldór Eldjárn samdi stefið.
Viðmælandi fjórða þáttar er Arnhildur Pálmadóttir arkitekt, stofnandi arkitektastofunnar s.ap ræðir viðfangsefni sín, samtímann og áleitnar spurningar, heildræna hugsun á stórum og smáum skala, hringrásarhönnun - og ímyndunaraflið.