Erindrekar x HAKK - dúnmjúk opnun
Þann 12. desember opnar HAKK, hönnunargallerí dyrnar að Óðinsgötu 1 í Reykjavík. Á þessari fyrstu dúnmjúku opnun HAKK stígur hönnunartríóið Erindrekar á stokk með fylgihluti úr æðardúni frá Skálanesi í Seyðisfirði.
Um er að ræða lúffur og húfur, úr fyrsta flokks vottuðum æðardúni og vatns- og vindheldri, lífrænni, bómull. Vörurnar eru handgerðar á Íslandi og seldar í takmörkuðu upplagi.
Nú er tilvalið að gefa dúnmjúka íslenska hönnun úr íslensku hráefni í jólagjöf sem hlýjar um hjartarætur.
Opnunartímar:
12. desember kl. 17:00 - 20:00
13. - 22. desember kl. 12:00 - 22:00
23. Desember kl. 12:00 - 23:00
Stúdíó Erindrekar er íslenskt hönnunartríó með aðsetur í Reykjavík og á Seyðisfirði. Stofan er skipuð vöruhönnuðunum og æðarbændunum Írisi Indriðadóttur og Signýju Jónsdóttur, og fatahönnuðinum og textílsérfræðingnum Sigmundi Páli Freysteinssyni. Erindrekar leggja áherslu á vistvæna hönnun og fylgir sjálfbærum vinnubrögðum í hverju smáatriði. Teymið notast við leikgleði, notagildi og nýstárlegar leiðir til að nýta efni og auðlindir til fulls og leitast við að skapa tímalausa og ábyrga hönnun. Erindrekar voru nýverið tilnefndir til Hönnunarverðlauna Íslands í flokki verks fyrir rannsókn þeirra og sýningu á fatnaði úr íslenskum æðardún. Þau halda nú áfram vegferð sinni í að skapa vistvænar flíkur úr æðardúni þar sem staðbundin framleiðsla er þeirra megin hugðarefni.
Nýstofnað Hakk gallery þróar og heldur sýningar auk viðburða á verkum og verkefnum íslenskra jafnt sem erlendra hönnuða og listamanna. Hakk er samstarfsverkefni Brynhildar Pálsdóttur vöruhönnuðar og Gunnars Péturssonar eiganda SKEKK