Ert þú næsti hönnuður Paper Collective?
Epal og Paper Collective sameina krafta sína og leita að næsta íslenska hönnuði til að hanna veggspjald fyrir Paper Collective sem sérhæfa sig í veggspjöldum og leggur það upp úr fallegri og tímalausri hönnun. Vel valdir listamenn hafa skapað veggspjöld fyrir hönd Paper Collective sem skreyta í dag mörg heimili um allan heim. Skilafrestur til 23. júní.
Keppnin er opin öllum þeim sem eru með sköpunar- og hönnunar áhuga í fyrirrúmi. Dómnefnd velur þrjú verk sem vinna til verðlauna og verða verkin sýnd í Epal Gallerí, Laugavegi 7, dagana 15. ágúst til 29. ágúst.
Peningaverðlaun eru fyrir þrjú efstu sætin. Verðlaunin eru eftirfarandi:
- 1. Sæti - 200.000 kr. ásamt þóknun af sölu (Royalty samningur), andvirði a.m.k. 100.000 kr.
- 2. Sæti - Þóknun af sölu (Royalty samningur), andvirði a.m.k. 100.000 kr.
- 3. Sæti - Þóknun af sölu (Royalty samningur), andvirði a.m.k. 100.000 kr.
Dómnefnd skipa
- Morten Kaaber – Stofnandi Paper Collective
- Kjartan Páll Eyjólfsson – Framkvæmdarstjóri Epal
- Erla María Árnadóttir – Grafískur hönnuður (FÍT)
- Maria Duda – Grafískur hönnuður Paper Collective
Skilafrestur er til 23. júní 2022.
Allar tillögur skal senda, ásamt stuttri lýsingu á listamanni og verki, á netfangið: samkeppni@epal.is
Athugið að hver hönnuður má senda inn fleiri en eitt verk. Ítarlegri upplýsingar um keppnina er að finna hér.
Við hvetjum þátttakendur til að kynna sér stefnu Paper Collective á heimasíðu þeirra hér.
Skilmálar:
- Verkinu ber að skila gegnum netfang og má hugmyndin ekki hafa birst né verið söluvara með neinum hætti áður.
- Paper Collective áskilur sér rétt á verkinu eftir keppnina.
- Ókláruð og stolin verk eru ekki samþykkt.
- Með því að taka þátt í keppninni samþykkir þátttakandi að for- og eftirnafn hans megi vera birt af skipuleggjendum þegar tilkynnt er um vinningshafa.
- Allar leiðbeiningar um skráningu skulu teljast vera hluti af skilmálunum og með því að skrá þig í keppnina samþykkir hönnuður þessa skilmála.
- Peningaverðlaun eru aðeins úthlutuð ef listamaður samþykkir skilyrði.