Fallegustu bækur í heimi - sýning
FÍT, Félag íslenskra teiknara í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Stiftung Buchkunst opna sýninguna Best Book Design from all over the World 2023 föstudaginn 19. janúar kl. 17.
Best Book Design from all over the World keppnin hefur verið haldin frá árinu 1963 með því markmiði að hvetja til aukins alþjóðlegs samtals um bókahönnun.
Í ár bárust í keppnina um það bil 600 bækur frá 30 löndum og hlutu 14 þeirra verðlaun. Verðlauna bækurnar koma frá Danmörku, Þýskalandi, Finnlandi, Grikklandi, Hollandi, Austurríki, Póllandi, Sviss og Suður Kóreu. Verðlaunað er í 5. flokkum — Goldene Letter (Aðalverðlaun), gull, silfur, brons og sérstakar tilnefningar.
Aðal verðlaunin í ár hlýtur bókin Susi + Ueli Berger. Kunst am Bau und im öffentlichen Raum 1968-2008. „Bókin er stuðningsrit við sýningu sem var sett upp með verkum Susi og Ueli en það ætti frekar horfa á hana sem sjálfstæða upplifun af verkum þeirra“ segir í umfjöllum dómnefndarinnar.