Fjölskyldusmiðja í Hönnunarsafninu um helgina
FJÖLSKYLDUSMIÐJAN Að byggja borg verður í Hönnunarsafni Íslands sunnudaginn 15. september nk. kl. 13-15.
Smiðjunni verður stillt upp sem borðspili í yfirstærð þar sem þáttakendur taka þátt í að byggja upp borg. Þannig gefst innsýn í heim byggingarlistar og borgarskipulags á aðgengilegan og áhugaverðan hátt.
Spilað verður eftir hnitmiðuðum leikreglum sem endurspegla einfaldaða útgáfu af samfélagi á skemmtilegan máta.
Smiðjan hentar fróðleiksfúsu og forvitnu fólki á öllum aldri.
Kristján Örn Kjartanssonarkitekt og einn af stofnendum arkitektastofunnar Krads og Lóa Hjálmtýsdóttir, teiknari og tónlistarmaður stýra smiðjunni.
Aðgangur er ókeypis.
Hér er viðburðurinn á Facebook.