Flotmeðferð eftir Flothettu tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2020
Þriðja og jafnframt síðasta tilnefningin til Hönnunarverðlauna Íslands árið 2020 er Flotmeðferð eftir Flothettu. Verðlaunin verða afhent með rafrænum hætti þann 29. janúar kl. 11.
RÖKSTUÐNINGUR DÓMNEFNDAR
„Fyrirtækið Flothetta býður nú upp á hannaða flotmeðferð fyrir litla hópa þar sem áhersla er lögð á fullkomna slökun og vellíðan. Ferlið er úthugsað með það að leiðarljósi að þáttakendur upplifi djúpa slökun, vellíðan, hvíld og endurnæringu. Af frásögn þátttakanda að dæma er um að ræða einstaka slökun og hugleiðsluástand. Flestar vatnsmeðferðir sem stundaðar eru í heiminum í dag er einstaklingsmeðferð. Það sem gerist í hópmeðferð er á öðrum skala, nærveran við aðra truflar ekkert heldur virðist þvert á móti efla áhrifin. Í tengslum við flothettuna hefur verið boðið upp á „samflot“ í mörgum sundlaugum á Íslandi undanfarin ár, sem er í sjálfu sér merkileg þróun, en flotmeðferðin tekur upplifunina skrefi lengra. Í tengslum við meðferðina hefur fyrirtækið þróað og sett á markað vörur til viðbótar við flothettuna sem eflir enn upplifun notandans. Meðferðaraðilar hljóta sérstaka þjálfun þar sem kenndar eru grunnaðferðir og undirstöður í djúpri vatnsmeðferðarvinnu. Flotmeðferðin sprettur upp úr sundmenningu Íslendinga en er líka kærkomin viðbót við hana. Hún er í takt við þær áherslur sem við höfum fundið fyrir síðustu ár; að verðmætasköpun er ekki bundin við framleiðslu hluta heldur getur svo sannarlega falist í upplifun, vellíðan og samveru.“
UM VERKEFNIÐ
Flothetta er íslensk hönnun, gerð til að upplifa slökun og vellíðan í vatni. Þegar flotið er og þyngdaraflinu sleppir frelsast þeir hlutar líkamans sem bera uppi þunga okkar dagsdaglega. Þannig fá miðtaugakerfið, vöðvar og hryggjarsúlan hvíld þegar flotið er um í heitri laug, án áreynslu. Streituvaldandi efni, líkt og adrenalín og kortisól, víkja fyrir taugaboðefnum eins og endorfíni sem bæði er verkjastillandi og veitir vellíðunartilfinningu. Þannig skapar Flothetta fullkomið ástand fyrir slökun og endurnæringu í mýkt vatnsins.
UM HÖNNUÐ
Hannað af Unni Valdísi Kristjánsdóttur, hönnuði, jóga- og vatnsmeðferðaraðila. Hugmyndafræði verkefnisins byggir á reynsluheimi hennar sem Íslendings sem stundað hefur náttúru- og sundlaugaferðir frá blautu barnsbeini. Þannig samtvinnast áhugi Unnar Valdísar á hönnun og að vinna með heita vatnið til heilsueflingar, slökunar og í lækningaskyni.
Framleiðsla og leikstjórn á myndbandi: Blóð Stúdíó
Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast.
Hönnunarverðlaun Íslands beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning.
Á afhendingunni verða veitt Hönnunarverðlaun Íslands, Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun ársins 2020.
Afhending Hönnunarverðlauna Íslands 2020 fer fram þann 29. janúar kl. 11 með rafrænum hætti. Taktu tímann frá hér!
Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Landsvirkjun, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.