Fögnum framúrskarandi hönnun þann 17. nóvember í Grósku
Afhending Hönnunarverðlauna Íslands 2022 fer fram í Grósku þann 17. nóvember.
Fyrir verðlaunaafhendinguna verður sjónum beint að þeim framúrskarandi og fjölbreyttu verkum sem hljóta tilnefningu í ár og gestum gefst tækifæri til að fá innsýn og taka þátt í samtali um þau. Í ár tilnefnir dómnefnd sex einstök verkefni til verðlaunanna, en sameiginlegur þráður í þeim öllum er endurnýting efna, samfélagsleg ábyrgð, umhverfi, samstarf, náttúra og nýsköpun.
Hönnuðir og höfundar tilnefndra verka munu stíga á svið í Grósku og fjalla um verkefnin sín, innblástur, hugmyndir, útkomu og áhrif. Bergur Finnbogason, creative director hjá CCP er kynnir og leiðir samtal ásamt Rúnu Thors, hönnuði og lektor í hönnunardeild Listaháskóla Íslands.
Í kjölfarið fer afhending Hönnunarverðlauna Íslands fram þar sem veitt verða Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands, viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun og loks aðalverðlaunin, Hönnunarverðlaun Íslands 2022.
Dagskrá - Hönnunarverðlaun Íslands 2022
Fögnum framúrskarandi íslenskri hönnun
– samtal um Hönnunarverðlaun Íslands
14:30 Húsið opnar - Kaffi í boði Kaffitárs
15:00 Innsýn inn í tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2022
16:00 Hlé
16:20 Innsýn inn í tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2022
17:00 Fordrykkur
Verðlaunaafhending
18:00 - 19:00 Afhending Hönnunarverðlauna Íslands 2022
19:00 - 20:00 Fögnuður og skál
Þar sem sætafjöldi er takmarkaður biðjum við gesti vinsamlegast að skrá sig hér.
Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast.
Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.