Glóð um jólin til styrktar Konukoti
Glóð er nýr íslenskur hönnunargripur, kertastjaki, hannaður af Erling Jóhannessyni gullsmiði og seldur til styrktar Konukoti, neyðarskýli fyrir húsnæðislausar konur. Með kaupum á Glóð er þannig hægt að sameina í einni gjöf vandaða íslenska hönnun og stuðning við nauðsynlega starfsemi í þágu þess stóra hóps sem reiðir sig á starfsemi Konukots.
Glóð hentar fyrir lítið kertaljós og er gerður úr möttu og spegluðu stáli, sem er skorið út í tímalaust form sem vísar í hátíðahefðir á íslenskum heimilum. Smiðsbúðin er verkstæði og verslun gullsmiðanna Erlings og Helgu Óskar.
Áformað er að Glóð 2023 verði fyrst í röð sex stjaka sem kynntir verða árlega og seldir til styrktar starfsemi Konukots. Glóð verður seld í Smiðsbúðinni og helstu gjafaverslunum á Reykjavíkursvæðinu.
Konukot er rekið af félagasamtökunum Rótinni samkvæmt þjónustusamningi við Reykjavíkurborg, en stór hluti starfsins fer fram í sjálfboðavinnu, og þjónar hópi sem hefur fjölbreyttan bakgrunn og þarfir. Hugmyndafræði Rótarinnar byggist á því að nálgast fíkn sem fjölþættan vanda, afleiðingu áfalla og félagslegra aðstæðna.