Hafnarfjarðarvegur/þróunarsvæði - Aðalskipulag Garðabæjar - val á ráðgjöfum
Garðabær óskar eftir ráðgjöfum sem eru skipaðir þverfaglegu teymi skipulagsráðgjafa; skipulagsfræðingar, arkitektar, landslagsarkitektar og verkfræðingar sem vinna að gerð rammahluta aðalskipulags og deiliskipulagsáætlana fyrir þróunarsvæði A ásamt Hafnarfjarðarvegi milli bæjarmarka og Álftanesvegi frá Engidal að Reykjanesbraut.
Markmiðið er að móta stefnu um uppbyggingu á svæðinu sem sett verður fram sem rammahluti aðalskipulags og deiliskipulags í áföngum. Áhersla verður á gæði byggðar, umhverfi, samgöngur og samráð við íbúa og samvinnu við hagsmunaðila. Skilafrestur til að sækja um er til og með 18. nóvember 2021. Umsóknir sendist á netfangið skipulag@gardabaer.is
Nánari upplýsingar um verkefnið, markmið þess, áherslu, verkþætti, kröfur, mat og tímalínu má sjá hér fyrir neðan.
AðalskipulagGarðabæjar 2016-2030
RammaskipulagLyngássvæði/Hafnarfjarðarvegur 2017
Verkefnislýsing
Markmið
- Að móta stefnu um uppbyggingu á svæðinu sem sett verður fram sem rammahluti aðalskipulags og deiliskipulag í áföngum sbr. kafli 3.1.3 í aðalskipulagi Garðabæjar.
- Að samræma stefnuna við aðrar áætlanir Garðabæjar og höfuðborgarsvæðisins
- Að móta stefnu í samráði við íbúa Garðabæjar
Áhersla - (sbr. Áherslur í ASKG – kafli 1.4)
- Gæði byggðar
Fjölbreytileiki í byggðarmynstri, íbúðagerð og aldurssamsetningu í Garðabæ.
Eftirsótt byggð til búsetu
Þéttleiki byggðar taki mið af áherslum Borgarlínu verkefnis
Lifandi miðbær með sterkri bæjarmynd frá Garðatorgi að Lyngási - Umhverfi
Gæðum Hraunsholtslækjar sem er á náttúruminjaskrá viðhaldið
Góð tengsl byggðar við umhverfi og náttúru
Umhverfisvottun (sbr. Breeam- eða Svansvottun)
Hljóð- og loftgæði
Kolefnisspor lágmarkað - Samgöngur
Stofnbraut hindri ekki samgang milli bæjarhluta
Almenningssamgöngur verði raunhæfur kostur.
Skilvirkt og öruggt stígakerfi
Öryggi allra samgöngumáta verði tryggt
Samvinna við Vegagerðina / Borgarlínu - Samráð við íbúa og samvinna við hagsmunaaðila
Þátttaka íbúa í stefnumörkun og mótun virkjuð
Samvinna við eigendur fasteigna á svæðinu
Verkþættir
- Rammahluti aðalskipulags
Þróunarsvæði A + Hafnarfjarðarvegur frá Kópavogi til Hafnarfjarðar - Deiliskipulag
Hafnarfjarðarvegur
Lyngás / Eskiás
Lyngás / Skeiðarás
Krafa
- Víðtæk reynsla af skipulagsgerð og samráði við íbúa og hagsmunaaðila
- Góð þekking á samgöngulausnum, umhverfisgæðum og umhverfisvottun.
- Reynsla af verkefnastjórnun með áherslu á kostnaðargát
Skilagögn
- Upplýsingar um hóp og reynslu
- Greinargerð um nálgunar- og vinnuaðferðir skipulagsmótunar
- Greinargerð um sýn á verkefnastjórnun, tímaáætlanir og kostnaðargát
Mat
- Víðtæk reynsla af skipulagsgerð
- Reynsla af mótun samgönguáætlana
- Reynsla af umhverfismati
Tímalína
- Auglýst eftir ráðgjafahóp – 3 vikur
- Val á ráðgjafahóp lokið – 3 vikur
- Samningur við ráðgjafahóp – 2 vikur
- Mótun stefnu og skipulagslýsingar –
- Skipulagslýsing lögð fram í skipulagsnefnd, bæjarráði og bæjarstjórn jan´22
- Íbúafundur þar sem verkefnið og samráðsferlið er kynnt íbúum og hagsmunaaðilum feb 2022
- Forkynning – vor 2022
- Auglýsing – haust 2022
- Staðfesting – vetur 2022/2023