Hanna Dís Whitehead fyrsti íslenski hönnuðurinn hjá ÅBEN
Hanna Dís Whitehead var að dögunum tilkynnt sem níundi, og fyrsti íslenski hönnuðurinn, hjá ÅBEN, fyrirtæki sem sérhæfir sig í að selja vörur eftir efnilega norræna hönnuði.
Hanna Dís verður með muni úr bæði Díalóg línu sinni og viðarhúsgögn úr Vítahrings línu sinni. Hver og einn hönnuður hjá ÅBEN er sérstaklega valinn út frá því að hafa þessa sérstöku norrænu fagurfræði en einnig að búa yfir sérstöðu sem gerir þá eftirtektaverða. Fyrirtækið sérhæfir sig í að finna efnilega norræna hönnuði og mynda tengsl á milli þeirra viðskiptavina sem leitast eftir því að fá dýpri og meiri þekkingu á þá muni sem þeir fjárfesta í og velja inn á sitt heimili. Þannig er búið til persónulegra samband á milli framleiðanda, hönnuðar og viðskiptavinar. Með hverri seldri vöru fylgir saga um hvernig og afhverju hún varð til.