Hönnunarsjóður – opið fyrir umsóknir um almenna- og ferðastyrki og endurbætt heimasíða í loftið
Búið er að opna fyrir umsóknir umalmenna- og ferðastyrki í Hönnunarsjóði.Um er að ræða fjórðu úthlutun árið 2019, umsóknarfresti lýkurá miðnætti þann 15. október og er úthlutun þann 14. nóvember.
Þá minnum við á að ennþá er opið fyrir umsóknir í þriðju úthlutun um ferðastyrki í Hönnunarsjóð, en umsóknarfresti lýkur eftir helgi, á miðnætti 20. ágúst næstkomandi og úhlutun fer fram 10. september.
Ný og endurbætt heimasíða Hönnunarsjóðs er farin í loftið. Vefsíðan hefur fengið andlitslyftingu og er nú farsímavæn. Með tímanum munu svo upplýsingar um alla styrkþega vera aðgengilegar á síðunni. Það er hönnunarstofan Kólófon sem sér um vefsíðu Hönnunarsjóðs.
Styrkirnir sem um ræðir eru eftirfarandi: þróunar- og rannsóknarstyrkir, verkefnastyrkir, markaðs- og kynningarstyrkir og ferðastyrkir. Nánar um styrki Hönnunarsjóðs má finna hér en ef það vakna einhverjar spurningar vinsamlegast hafið samband á sjodur@honnunarmidstod.is.