Íslensk flík - vitundarvakning um íslenska fatahönnun
Fatahönnunarfélag Íslands hefur nú vegferð innlendrar vitundarvakningar um íslenska fatahönnun með verkefninu #íslenskflík. Markmið verkefnisins er að varpa ljósi á það framúrskarandi hugvit og þær fjölbreyttu vörur sem hér er að finna.
Verkefnið er framlag Fatahönnunarfélags Íslands til HönnunarMars í ár og er í formi vefsíðu, innsetningar og vitundarvakningar á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #íslenskflík. Vefsíðan www.islenskflik.is er heimastöð verkefnisins. Á vefsíðunni getur fólk sótt sér upplýsingar um verkefnið sjálft, fræðiefni um íslenska fatahönnun ásamt lista yfir íslenska fatahönnuði og fatamerki. Sérstakur myndaþáttur var unnin fyrir átakið en þar er íslenska flíkin í forgrunni. Myndaþátturinn var í listrænni stjórnun Ellenar Loftsdóttur og ljósmyndarans Marsý Hildar Þórsdóttur. Ljósmyndaverkin voru aðgengileg gestum og gangandi á HönnunarMars en þau verða í formi innsetningar í gluggum við Skólavörðustíg 20, Laugaveg 30A og Hverfisgötu 94-96.
Almennt teljum við fólk nokkuð meðvitað um íslenska fatahönnun og bera hana með stolti en vita kannski ekki af breiddinni sem er í boði. Þess vegna ákváðum við að fara í þetta verkefni, til að gera íslenska fatahönnun enn aðgengilegri. Einnig langar okkur að virkja fólk og gefa því tækifæri til að sýna sínar uppáhaldsflíkur frá íslenskum hönnuðum. Þannig viljum við vekja athygli á því framúrskarandi hugviti og þeim fjölbreyttu vörum sem fatahönnunarfyrirtæki á Íslandi bjóða upp á, ásamt því að vekja upp umræðu um þá möguleika sem felast í greininni.
Viðskiptavinir geta haft gríðarleg áhrif á eflingu og vöxt innlendra atvinnugreina með því að velja vörur frá íslenskum fyrirtækjum. Með því að velja íslenska fatahönnun styður fólk eflingu vaxandi atvinnugreinar á Íslandi og með verkefninu viljum við hvetja fólk til að staldra við og skoða íslenska fatahönnun næst þegar það fjárfestir í flík.
Einn mikilvægasti liður verkefnisins er virkjun, notkun og dreifing myllumerkisins #íslenskflík. Myllumerkið er hugsað sem hvatning fyrir alla þá sem vilja taka þátt í verkefninu með okkur. Flíkin getur verið hönnuð, þróuð eða framleidd á Íslandi, eftir því sem við á. Með átakinu vill Fatahönnunarfélag Íslands hvetja Íslendinga til að staldra við og skoða íslenskan fatnað næst þegar þeir fjárfesta í flík.