Íslensk hönnun lýsir upp borgina í október
„Þetta er íslensk hönnun“ kynningarátakið lýsir upp höfuðborgina frá og með deginum í dag. Þetta er þriðja árið í röð sem nýstárleg, fjölbreytileg og litrík íslensk hönnun og arkitektúr birtist og tekur yfir öll ljósaskilti höfuðborgarsvæðisins í heila viku.
Markmiðið átaksins er að auka sýnileika, vitund og virðingu fyrir íslenskri hönnun, en um 60 ólíkar hönnunarvörur og verk arkitekta birtast á ljósaskiltum um allt höfuðborgarsvæðið í heila viku og sýna gæði og fjölbreytileika íslenskrar hönnunar.
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs tekur við keflinu af Eyjólfi Pálssyni í Epal, sem átti frumkvæðið að átakinu árið 2021, með stuðningi Billboard og auglýsingastofunnar Brandenburg. Átakið vakti mikla athygli meðal almennings, í fjölmiðlum og ánægju meðal þátttakenda og var endurtekið 2022.
Þetta er átak sem virkjar breiðan hóp hönnuða, arkitekta, framleiðanda og fyrirtækja og eykur slagkraft og sýnir umfang og fjölbreytileika íslenskrar hönnunar, hvort sem um er að ræða fatahönnun, arkitektúr, húsgögn, skart, keramik, grafíska hönnun eða hönnun stoðtækja, véla og tölvuleikja
Brandenburg auglýsingastofa sér um að hanna efnið líkt og fyrri ár og Billboard styður vel við verkefnið.
Fylgstu með á ferð um borgina í vikunni!