Loftpúðinn tilnefndur til Green Product Awards 2024
Loftpúðinn eftir Studíó Fléttu fyrir Fólk Reykjavík er tilnefndur til Green Product Awards 2024. Tilkynnt var um tilnefningar í gær í Berlín en yfir 1500 ábendingar frá 54 löndum bárust til verðlaunanna og hlaut Loftpúðinn tilnefningu í flokki Lífstíls- og innanhúsvara. Hægt er kjósa um vöru ársins til 14. janúar 2024.
„Loftpúðinn er gott dæmi um sköpunargáfuna og ástríðuna sem tilnefnd teymi leggja af mörkum til sjálfbærari framtíðar," segir Nils Bader, framkvæmdastjóri Green Product Awards.
Þessi alþjóðlega tilnefning bætist við verðlaun Loftpúðans en sigraði flokkinn Vara ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2023.
Almenningi gefst nú kostur á að kjósa bestu vöruna til 14.janúar næstkomandi. Kjósa má loftpúðann hér.
Loftpúðinn fæst m.a í Hönnunarsafn Íslands, Garðheimar, Hafnarborg á folkreykjavik.is
Loftpúðinn er samstarfsverkefni FÓLKs og Fléttu. Hann er hannaður af Stúdíó Fléttu fyrir vörumerkið FÓLK, og er afgangshráefni frá iðnaði og fyrirtækjum notað í púðann. Nánast allt hráefni sem notað er í Loftpúðann hefði annars endað í landfyllingu eða verið brennt en fær nú framhaldslíf. Púðarnir eru, eins og nafnið gefur til kynna, gerðir úr loftpúðum úr bílum og fleiri afgangshráefnum, meðal annars er fylliefnið afgangsefni úr úlpuframleiðslu íslenska tískumerkisins 66°Norður.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fjallað er um Loftpúðann alþjóðlega en umfjöllun um hann hefur birst í leiðandi hönnunartímaritum og fjölmiðlum eins og Elle Decor, Vogue, Frankfurter Allgemeine og Le Monde.