Málþing um gervigreind og höfundarétt
Þann 29. september fer fram málþing um gervigreind og höfundarétt á vegum STEF, Myndstef, Rithöfundasambandið, Hagþenkir, Blaðamannafélagið, Félag leikstjóra á Íslandi, Samtök kvikmyndaleikstjóra, Félag kvikmyndagerðarmanna, Félag leikskálda og handritshöfunda, Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst.
Gervigreind hefur verið í umræðunni um árabil og reglulega berast fregnir af framþróun og aukinni úbreiðslu hennar hvarvetna. Sér í lagi hefur listsköpun verið í kastljósinu undanfarið, eftir því sem tækni hefur fleygt fram og notkun gervigreindar aukist hröðum skrefum á hinum ýmsu sviðum skapandi greina.
Samhliða þessu hafa eðlilega vaknað áleitnar spurningar, einkum varðandi hagnýtingu og höfundarétt varnings og verka sem til verða með atfylgi eða milligöngu gervigreindar, m.a. með hliðsjón af listaverkum sem notuð eru til „þjálfunar“ gervigreindar.
Á málþinginu verður boðið upp á fyrirlestra og hringborðsumræður með kunnáttufólki á sviðum tækni, fræða, lista og laga. Markmið málþingsins er ekki að tala niður eða hafna gervigreind, heldur að varpa fram spurningum og fræðast um möguleg framtíðaráhrif hennar á skapandi greinar og höfundarétt.
Miðasala fer fram hér og er miðaverð 2.500 kr.
Á meðan þingið stendur yfir verður boðið upp á kaffi,te, vatn og bakkelsi. Að þingi loknu verða léttar veitingar í boði.
Sjá upplýsingar um viðburðinn hér.