Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Hönnunarmiðstöð Íslands verður Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

16. júní 2020

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs kynnir nýtt einkenni og nýjar áherslur í dag.

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs er hreyfiafl sjálfbærrar verðmætasköpunar sem byggir á hönnun og arkitektúr. Miðstöðin stuðlar að auknu samstarfi milli hönnuða og fyrirtækja og vinnur að því að efla hönnunardrifna og notendavæna nýsköpun sem mótandi afl í menningu, samfélagi og atvinnulífi framtíðar á Íslandi.

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs mun í auknum mæli leggja áherslu á hönnunardrifna nýsköpun sem stuðlar að verðmætasköpun og betra samfélagi. Markmiðið er að íslensk fyrirtæki og hið opinbera telji sjálfsagt að nýta sér hönnun sem aðferð og tæki í nýsköpun til að ná fram breytingum í þágu lífsgæða, umhverfis og atvinnulífs.

Hönnunarmiðstöð Íslands hefur verið starfrækt í áratug og lagt áherslu á mikilvægi hönnunar og arkitektúrs fyrir samfélagið, menningu og atvinnu- og efnahagslíf.  Vitund og áhersla á íslenska hönnun hefur gjörbreyst á þessum tíma. Íslensk hönnun og HönnunarMars eru þekkt víða um heim og Hönnunarmiðstöð á Íslandi er vel þekkt í fagsamfélagi sínu á Norðurlöndum og víðar í Evrópu og Bandaríkjunum.

Á þessum tímamótum telur stjórn tímabært að skerpa á hlutverki miðstöðvarinnar og um leiðbæta arkitektúr inn í nafnið sem fellur betur að alþjóðlegum áherslum.

Markmið okkar er að skerpa sýn og efla starfsemina í þágu gæða, sjálfbærni og lífsgæða á Íslandi, enda er stöðug endurskoðun mikilvæg í starfsemi eins og þessari.  Við eigum auðlind í hönnuðum, hugviti og ungu fólki sem þarf að virkja til góðra verka og tryggja atvinnu til framtíðar. Nýju einkenni er ætlað að marka upphafið að nýjum kafla í starfsemi miðstöðvarinnar og það er von okkar að á næstu árum förum við að sjá verulegar áherslubreytingar hjá fyrirtækjum og hinu opinbera þegar kemur að hönnunardrifinni og notendavænni nýsköpun.

Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.

Studio Studio, grafísku hönnuðirnir Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir hönnuðu einkennið en letrið er hannað af íslensku letursmiðjunni Universal Thirst. Örin endurspeglar framþróun og nýja sýn til framtíðar þar sem haldið er fram veginn með bjartsýni að leiðarljósi og einbeittan vilja til að efla íslenska hönnun og arkitektúr í þágu gæða og góðs mannlífs á Íslandi.

Samhliða nýju einkenni er kominn nýr vefur Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs úr smiðju Ueno í loftið.

honnunarmidstod
honnunarmidstodHönnunarmiðstöð Íslands verður Miðstöð hönnunar og arkitektúrs 👋 Nýtt einkenni og áherslur kynntar í dag📢 Miðstöð hönnunar og arkitektúrs er hreyfiafl sjálfbærrar verðmætasköpunar sem byggir á hönnun og arkitektúr. Miðstöðin stuðlar að auknu samstarfi milli hönnuða og fyrirtækja og vinnur að því að efla hönnunardrifna og notendavæna nýsköpun sem mótandi afl í menningu, samfélagi og atvinnulífi framtíðar á Íslandi. Studio Studio, grafísku hönnuðurnir Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir, hönnuðu einkennið en letrið er hannað af íslensku letursmiðjunni Universal Thirst. Örin endurspeglar framþróun og nýja sýn til framtíðar þar sem haldið er fram veginn með bjartsýni að leiðarljósi og einbeittan vilja til að efla íslenska hönnun og arkitektúr í þágu gæða og góðs mannlífs á Íslandi. Linkur í bio fyrir nánari upplýsingar ☑️ #miðstöðhönnunarogarkitektúrs #icelanddesignandarchitecture #newlook #newdesign #newname #icelandicdesign #reykjavik #iceland

Tengt efni

  • Letur sem form  – Studio Studio

  • HönnunarMars

  • Síbreytilegur og sveigjanlegur rammi — Ástþór Helgason og Studio Studio

Dagsetning
16. júní 2020
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200