Opið fyrir umsóknir í borgarsjóð Reykjavíkurborgar
Opnað var fyrir umsóknir um styrk úr borgarsjóði þann 1. september 2024. Umsóknarfrestur er til 30. september 2024.
Borgarsjóður veitir styrki til félagasamtaka, fyrirtækja og einstaklinga til starfsemi, verkefna og viðburða í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda.
Styrkir eru veittir til verkefna á sviði eftirtalinna málaflokka:
- Félags- og velferðarmála
- Íþrótta- og æskulýðsmála
- Mannréttindamála
- Menningarmála
Umsóknir um styrki fara fram rafrænt í gegnum Mínar síður og skulu berast innan tilskilins frests, starfsemi, viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftirá. Umsóknir um styrki eru metnar út frá reglum Reykjavíkurborgar um styrki og mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar sem og verklagsreglum hvers málaflokks.