Opið fyrir umsóknir í Hönnunarsjóð
Opið er fyrir umsóknir í Hönnunarsjóð. Um er að ræða fyrri úhlutun ársins 2024 en umsóknarfrestur rennur út þann 21. febrúar 2024. Hægt er að sækja um þrjár tegundir styrkja auk ferðastyrkja. Úthlutun fer fram 22. mars 2024.
UMSÓKNARFRESTIR 2024
Almennir- & ferðastyrkir
1. desember 2023 – 21. febrúar 2024
Úthlutun 22. mars 2024
Almennir- & ferðastyrkir
2. apríl – 19. september
Úthlutun 17. október 2024
Hönnunarsjóður veitir styrki til margvíslegra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs: þróunar og rannsókna, verkefna og markaðsstarfs auk ferðastyrkja.
Hlutverk Hönnunarsjóðs er að efla þekkingu, atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi en sjóðurinn er fjármagnaður af stjórnvöldum.
Hönnunarsjóður stuðlar einnig að auknum útflutningi íslenskrar hönnunar með því að styrkja kynningar- og markaðsstarf erlendis.
Á þessu ári hækkaði sjóðurinn upp í 80 milljónir og samhliða því varð sú breyting á að hámark styrkja hækkaði upp í 10 milljónir og ferðastyrkir upp í 150 þúsund hver.
Hönnunarsjóður veitir þrennskonar almenna styrki:
- Þróunar- og rannsóknarstyrkir: Styrkir rannsóknir og þróun nýrra hugmynda eða lausna.
- Verkefnastyrkir: Styrkir nýjar hugmyndir eða lausnir sem búið er að þróa og móta og eru komin á útfærslu- og framkvæmdastig.
- Markaðs- og kynningarstyrkir: Styrkir verkefni sem komin eru af útfærslu- og framkvæmdastigi og eru fullmótuð og tilbúin til markaðssetningar.
- Ferðastyrkir auka möguleika hönnuða og arkitekta á því að taka þátt í erlendum samstarfs- og kynningarverkefnum, sýningum, viðburðum, ráðstefnum eða viðskiptastefnumótum. Hægt er að sækja um ferðastyrk fyrir einn einstakling eða fleiri til sömu ferðar. Mælt er með því að umsækjendur ferðastyrkja vegna sama verkefnis/ferðar sæki um sem hópur en ekki hver fyrir sig.