Saman ~ matar, menningar og upplifunar markaður - taktu þátt!
Opið er fyrir umsóknir í Saman ~ menningar- &matar markaður sem fer fram laugardaginn 9. desember í Hörpu. Um er ræða vettvang fyrir skemmtilegustu, áhugaverðustu og færustu hönnuði, listamenn, matar- og drykkjarframleiðendur til að selja vörur sínar, bjóða afslætti, setja óvæntar nýjungar og kynna vörumerki.
Skipuleggjendur markaðsins eru fólkið á bakvið PopUp Verzlun, Lady Brewery, And Antimatter og Sodalab en með Saman eru þau að sameina sínar uppáhalds greinar: hönnun, list, mat og drykk á vettvang sem vekur áhuga og fær samfélagið til að taka þátt. Vettvangur til að selja vörur en líka kynna sig.
„Með breyttu landslagi fannst okkur við eiga það skilið að fá inn eitthvað nýtt, áhugavert, óvænt, ferskt, fallegt og skemmtilegt. Við erum núna á höttunum eftir klárustu, flottustu og áhugaverðustu hönnuðunum, listamönnunum/konunum og framleiðendum á íslenskum markaði.“