Hvert er steinsteypt mannvirki ársins 2023?
Steinsteypufélags Íslands hefur ákveðið að velja steinsteypt mannvirki ársins árið 2023. Veitt verður viðurkenning fyrir mannvirki á Íslandi þar sem saman fer áhugaverð og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi. Óskað er eftir því að ábendingar berist félaginu fyrir 13. janúar 2023 (athugið að frestur hefur verið framlengdur).
Við valið verður haft að leiðarljósi að mannvirkið:
- Sýni steinsteypu á áberandi hátt.
- Sé framúrskarandi vegna arkitektúrs, verkfræðilegra lausna, gæði steinsteypu og handverks.
- Búi yfir frumleika og endurspegli þekkingu í meðferð og notkun steinsteypu. Gæði og áferð steinsteypu vega þungt í mati.
- Auðgi umhverfið, inniberi gæði, glæsileik og nytsemi og sýni augljósan metnað í samhengi við umhverfi sitt.
- Sé byggt á síðustu fimm árum og í notkun.
Viðurkenningin verður veitt mannvirkinu og þeim aðilum sem að því standa, svo sem verkkaupa, hönnuðum og framkvæmdaaðilum.
Viðurkenningin verður afhend á Steinsteypudeginum þann 10. febrúar 2023. Leitað er eftir ábendingum frá verk-, tækni- og byggingafræðingum, arkitektum, listamönnum og iðnaðarmönnum og frá skipulags- og bygginganefndum.
Þeim fylgi eftirtalin gögn:
- heiti mannvirkis, staðsetning og eigandi
- verkkaupi
- hönnunarteymi
- framkvæmdaaðili og framkvæmdaár
- hvenær tekið í notkun
- stutt lýsing á mannvirki, kennistærðir og hlutverk steinsteypu
- ljósmyndir og, ef vill, myndbönd (teikningar óþarfar)
Tillögur skulu sendast á netfang félagsins: steinsteypufelag@steinsteypufelag.is